fbpx
Menu

Fréttir

28. febrúar 2023

Veistu hvað þú vilt?

Háskóladagurinn 2023Háskóladagurinn verður haldinn laugardaginn 4. mars kl. 12:00–15:00.

Allir háskólar landsins standa að Háskóladeginum og er tilgangurinn að kynna það fjölbreytta nám sem í boði er á Íslandi.

Kynningarnar fara fram í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og Grósku hugmyndahúsi.

Einnig gefst gestum og gangandi tækifæri til að spjalla við nemendur, kennara, náms- og starfsráðgjafa um allt sem viðkemur námi í skólunum og fá upplýsingar um fjölbreytta námsmöguleika.

Allar nánari upplýsingar má sjá inn á haskoladagurinn.is