15. febrúar 2024
Ert þú í atvinnuleit?
Starfastræti Tækniskólans

Starfastræti Tækniskólans hefur þann tilgang að tengja saman nemendur og fyrirtæki þegar kemur að atvinnuleit og starfsnámi.
Á síðunni má finna starfsauglýsingar frá þeim fyrirtækjum sem eru að leita að einstaklingum í sumarstörf eða önnur störf tengd faggreinum skólans.
Þar má einnig finna gagnlegar upplýsingar fyrir nemendur sem eru að taka sín fyrstu skref í atvinnuleit. Hvernig á að setja upp ferilskrá, skrifa kynningarbréf og hvernig er best að undirbúa atvinnuviðtal.
Við hvetjum nemendur til þess að fylgjast með á síðunni og nýta sér þær upplýsingar sem þar eru til staðar.