Menu

Fréttir

05. desember 2024

Stýringar sérstaklega áhugaverðar

Fjórir nemendur Tækniskólans eru nú á námssamningi í rafvirkjun hjá TG Raf. Fyrirtækið var stofnað í Grindavík árið 2004 en hefur nú flutt starfsstöð sína alfarið í Hafnarfjörð. Það þjónustar m.a. útgerðir, vinnslur, verksmiðjur, byggingarverktaka og önnur fyrirtæki. Það er því óhætt að segja að fjölbreyttir möguleikar opnist í þjálfun nema og fyrirtækið leggur áherslu á að veita þeim góða þjálfun svo þeir séu sem best undirbúnir fyrir sveinspróf.

Við náðum tali af Elvari Jósepssyni og Jóni Aðalberg Árnasyni sem báðir eru á námssamningi hjá TG Raf.

Elvar segir fyrirtækið í áhugaverðum og fjölbreyttum verkefnum og var því virkilega sáttur að fara á samning þangað.

Þessa dagana er ég að vinna í húsarafmagni í nýbyggingu Herz í Keflavík og fæ góða þjálfun í þeim hluta námsins. Mér finnst stýringar sérstaklega áhugaverðar og vonast til að dýpka þekkingu mína frekar á því sviði.

Hann segir kosti ferilbókarinnar vera þá að nemar fái yfirlit yfir það sem á að læra, þó hún sé helst til yfirgripsmikil. Elvar stefnir að sveinsprófi í febrúar og er því farinn að huga að undirbúningi.

Jón Aðalberg Árnason er einnig ánægður með vinnustaðanámið hjá TG Raf. og þá reynslu sem hann hefur öðlast hjá fyrirtækinu. Nú er hann að vinna í Sandgerði í nýbyggingu og tekur þar að sér ýmis verkefni, s.s. að tengja ljós og segulloka. Jón Aðalberg stefnir á að taka sveinsprófið í júní.

Við þökkum þeim félögum fyrir að veita okkur innsýn í vinnustaðanámið og óskum þeim góðs gengis í framhaldinu.