Menu

Fréttir

19. nóvember 2025

Til hamingju nýsveinar!

Nýsveinar taka á móti sveinsbréfum

Margir fyrrum nemendur Tækniskólans voru meðal þeirra 84 nýsveina sem fengu sveinsbréf afhent í gær, mánudaginn 18. nóvember, við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. Afhending sveinsbréfa er stór áfangi í námi og starfsferli nemenda skólans og markar nýjankafla í þeirra faglegu vegferð.

Athöfnin var leidd af Vilborgu Helgu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Iðunnar, sem stýrði afhendingunni af fagmennsku. Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona og uppistandari, sá svo til þess að gleði og jákvæð stemning einkenndi daginn.

Nýsveinarnir okkar hafa lagt á sig mikla vinnu, sýnt þrautsegju og tileinkað sér bæði verklega og fræðilega færni á sínum brautum. Tækniskólinn er stoltur af árangri þeirra og óskar öllum nýsveinum skólans innilega til hamingju með áfangann. Við hlökkum til að fylgjast með þeim blómstra í framtíðinni.