19. desember 2022
Útskrift Tækniskólans á haustönn 2022
Útskrift Tækniskólans á haustönn 2022 fer fram í Eldborgarsal Hörpu, þriðjudaginn 20. desember. Athöfnin hefst stundvíslega kl. 13:00, en nemendur eru beðnir um að mæta klukkustund áður en athöfn hefst, nánar tiltekið klukkan 12:00 í Eldborgarsal.
Útskriftarnemendum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina námsbraut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nemandi, hefur leyfi til að bjóða fimm gestum með á athöfnina.
Hér eru nokkur praktísk atriði sem nemendur þurfa að vita:
- Nemendur mæta klukkan 12:10 í Eldborgarsal Hörpu
- Öðrum gestum er hleypt inn í salinn 20 mínútum fyrir athöfn
- Hámarksfjöldi gesta pr. nemanda eru 5 gestir
- Lengd athafnar er u.þ.b. 2 klst.
- Snyrtilegur klæðnaður er skilyrði
Ath. Ef nemandi er að útskrifast af tveimur námsbrautum – t.d. sem stúdent og klæðskeri – þá fær viðkomandi nemandi bæði burtfararskírteini í einu við útskrift.