fbpx
en
Menu
en

Fréttir

22. maí 2024

Útskrift Tækni­skólans

Brautskráning 23. maí

Útskrift Tækni­skólans á vorönn 2024 fer fram í Eld­borg­arsal Hörpu, fimmtu­daginn 23. maí. Athöfnin hefst stund­vís­lega kl. 16:00 og nem­endur eru beðnir um að mæta klukku­stund áður en athöfn hefst, nánar til­tekið kl. 15:00 í Eld­borg­arsal.

Útskrift­ar­nem­endum er úthlutað sæti við athöfnina og hver skóli útskrifar eina náms­braut í einu. Frjálst sætaval er fyrir gesti, en hver og einn nem­andi, hefur leyfi til að bjóða þremur gestum með á athöfnina.

Hér eru nokkur praktísk atriði sem nemendur þurfa að vita:

  • Nemendur mæta klukkan 15:00 í Eldborgarsal Hörpu
  • Öðrum gestum er hleypt inn í salinn 20 mínútum fyrir athöfn
  • Hámarksfjöldi gesta pr. nemanda eru 3 gestir
  • Lengd athafnar eru rúmlega 2,5 klst.
  • Snyrtilegur klæðnaður er skilyrði

Ath. Ef nem­andi er að útskrifast af tveimur náms­brautum – t.d. sem stúdent og klæðskeri – þá fær viðkom­andi nem­andi bæði burt­far­ar­skír­teini afhent á sama tíma við útskrift.

Hér má sjá upptöku af viðburðinum.