Valvika
Í valvikunni 22.–26. september staðfesta nemendur í dagskóla umsókn sína um áframhaldandi skólavist á næstu önn. Það er gert með því að yfirfara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skólagjöld. Þá þurfa þeir ekki að sækja aftur formlega um skólavist.
Hér má sjá nánari leiðbeiningar um áfangaval og brautaskipi. Nemendum er einnig boðin aðstoð við valið í valviku.
Athugið að valvikan á ekki við um nemendur sem eru á brautum í flugvirkjun, hljóðtækni, meistaraskóla, stafrænni hönnun, vefþróun eða í almennu dreifnámi.
Brautaskipti
Umsókn um brautaskipti fer fram í Innu. Nemendur sem hyggja á að skipta um braut og eða þeir sem eru að ljúka grunnbrautum og þurfa að velja sér framhaldsbraut. Skólastjóri afgreiðir brautaskipti og samhliða velur og staðfestir áfanga fyrir næstu önn. Síðasti dagur til að óska eftir brautarskiptum er í lok föstudags í valviku.
Upplýsingar og leiðbeiningar
- Leiðbeiningar vegna vals – nemendur
- Leiðbeiningar vegna brautaskipta – nemendur
- Valvika – opið val
- Námsskipulag allra brauta
- Myndræn útskýring á áfangaheitum
- Leiðbeiningar vegna valviku – fyrir starfsmenn
Vinnustaðanám
Nemendur á námsbrautum sem innihalda vinnustaðanám er sérstaklega bent á að skoða námsskipulag brautarinnar og leita aðstoðar í valinu ef á þarf að halda. Mikilvægt er að skoða hvort það er tímabært á næstu önn, t.d. ef aðeins loka önn er eftir. Nemendur sem eru komnir með samningspláss eru minntir á að sækja um að skólinn geri námssamning og stofni ferilbók. Sjá nánar um vinnustaðanámið hér.
Vinnustaðanám – hvenær, hvernig, hvað?
https://tskoli.is/wp-content/uploads/2025/02/Vinnustadanamid.pdf