fbpx
Menu

Tækniskólinn veitir grunnskólanemendum í 10. bekk tækifæri til þess að velja sér áfanga á sínu áhugasviði.

Nemendur kynnast ólíku vinnulagi og aðferðum í list- og verknámi sem kynntar eru í lotukerfi þar sem hver nemandi velur þrjú viðfangsefni.

 

Skráning og tengiliður


Þátttökuskóli safnar saman skráningum nemenda sinna og einnig þarf að fylla út skjal sem sent er til tengiliðar í Tækniskólanum.

Sýnishorn að skráningarskjali (pdf)

Tengiliður í Tækniskólanum fyrir grunnskólaval er Einar Sigurðsson en hann sendir skráningarskjal í þá skóla sem ætla að senda inn skráningar. Hann gefur einnig nánari upplýsingar um grunnskólavalið ef þörf er á.

Upplýsingablað –  tími, staðsetning, uppbygging og viðfangsefni (pdf)

Valblað fyrir grunnskólanemendur (pdf)

 

Greinar í boði


Hönnun og nýsköpun

Hönnun, nýsköpun og verkleg þjálfun í formum og vinna með efni af ýmsum toga. 

 

Byggingagreinar

Málaraiðn

Tréiðn

Unnið er að  verkefnum eftir eigin hugmynd eða tilbúnum teikningum. Nemendur kynnast vélum og verkfærum sem notuð eru á smíðaverkstæðum.

Pípulagnir

Kynning á hita- og vatnslögnum húsa. Nemendur prófa að sjóða saman pípulagnir, tengja eftir mismunandi tegundum efna og þrýstiprófa.

Málaraiðn

Nemendur kynnast spörtlun og skreytimálun.

Múraraiðn

Nemendur kynnast fjölbreyttum viðfangsefnum iðngreinarinnar.

 

Rafiðn

Tölvu- og netkerfi

Nemendur kynnast grunnatriðum í rafeindatækni og fá að taka sundur tölvur og setja saman aftur. Kenndar eru lóðningar og ýmsir hlutar íhluta í rafrásum. Einnig verður kynning á rökrásum, tvítölukerfinu og hermiforritum.

 

Málmiðn

Skoðuð er aðstaða skólans í málmsmíði og véltækni, nemendur fá að kynnast helstu verkfærum til málmsmíða og málmsuðu og fá að smíða litla hluti úr málmi.

 

Sjómennska

Nemendur kynnast aðstöðu skólans í skipstjórnar­greinum, skoða upp í turn á Sjómannaskólahúsinu, sjá radar og GPS, fá að bæta net og læra að binda hnúta, og prófa að sigla stórum skipum um öll heimsins höf í risastórum skipstjórnarhermi.

 

Upplýsingatækni

Forritun og vefsmíði

Nemendur læra undirstöðuatriði forritunar og búa til einfalda vefsíðu.

Ljósmyndun og myndvinnsla

Nemendur læra að beita myndavél með því að taka myndir við margvíslegar aðstæður og farið verður í grunnatriði í stafrænni myndvinnslu.

 

Fataiðn

Föt og fylgihlutir

Nemendur fá að kynnast námi og aðstöðu á fataiðnbraut, vinna verkefni úr ýmsum efnum og sjá hvernig hugmynd verður að flík.

 

Hársnyrtiiðn

Ertu klár í hár?

Nemendur fræðast um hár og hárumhirðu. Fléttaður er saman fróðleikur og verklegar æfingar, farið í heimsóknir og möguleikar hársnyrtifagsins skoðaðir.