Menu

Inna – Upplýsinga- og kennslukerfi

Inna er upp­lýs­inga- og kennslu­kerfi skólans sem heldur utan um alla þætti náms hjá nem­endum, m.a. vitn­isburð, ein­kunnir, ástundun, mæt­ingu og náms­feril. Inna er einnig kennslu­kerfi skólans, og er þar m.a. hægt að nálgast námsáætlanir áfanga og náms­gagna­lista. Mik­il­vægt er að nem­endur gæti þess að net­föng þeirra og síma­númer séu rétt skráð í Innu. Tengill inn á Innu er neðst á vefsíðu Tækni­skólans.

Athugið: Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu.

1

Innskráning

Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu. Raf­rænu skil­ríkin þarf að virkja áður en nem­andinn getur skráð sig inn. Hér má sjá upp­lýs­ingar um hvernig nem­endur geta sótt rafræn skilríki í símann sinn og afgreiðslustaði þeirra.

Stu­dents and par­ents are only to use ID number for Inna Digital Certificates.

 

Rafræn innskráning á Innu

 

1

Office 365 og Google – Tengja aðgang við Innu

Not­endur geta tengt Office 365 og Google aðganginn við Innu aðgang sinn. Þegar not­endur hafa tengt aðganginn sinn geta þeir notað inn­skrán­ingu með Google og Office 365 inn á Innu, sjá leiðbeiningar. Auk þess er hægt að hlaða skrám úr One drive sem viðhengi í kerfinu.

 

Nemandi sem er eldri en 18 ára getur veitt aðgang fyrir aðstandanda

Þegar nem­andi verður 18 ára lokast fyrir aðgang aðstand­enda að Innu en nem­andinn getur hins vegar opnað hann aftur og veitt aðstand­endum áfram­hald­andi aðgang að Innu. Hafi nem­andi opnað fyrir aðgang aðstand­enda í Innu, geta þeir áfram skráð veik­indi nem­andans í Innu, sjá leiðbeiningar.

 

Tölvur skólans

Upplýsingar um aðgangs-og lyk­ilorð fyrir tölvur skólans.

 

 

Uppfært 15. janúar 2025
Áfangastjórn