Námið er mjög verkefnamiðað og í verklegum áföngum er notast við kennslubúnað skólans. Því er mikilvægt að nemendur komi í skólann til að vinna verkefni sín, annaðhvort á skipulögðum tíma eða samkvæmt samkomulagi við kennara.
Allt nám fer í gegn um námskerfi Innu.
Ekki er mætingarskylda. Verkleg verkefni eru á staðnum en bókleg verkefni krefjast síður viðveru. Kennarar eru á staðnum á kvöldin samkvæmt töflu nema annað sé ákveðið í samráði við nemendur.
Fyrir grunnnám rafiðna þarf að hafa lokið grunnskóla með lágmarkseinkunn B í íslensku, ensku og stærðfræði.
Fyrir rafvirkjun og rafeindavirkjun þarf að hafa lokið grunnnámi rafiðna.
Þú getur náð þér í menntun í grunnnámi rafiðna, rafvirkjun og rafveituvirkjun.
Markmiðið með náminu er að auðvelda fólki í atvinnulífinu að öðlast réttindi.
Eftir útskrift getur þú tekið sveinspróf í þeirri grein sem þú klárar.
Nemendur sjá í Innu í stundatöflunni sinni hvar og hvenær þeir eiga að mæta.
Námið er mjög verkefnamiðað og í verklegum áföngum er notast við kennslubúnað skólans. Því er mikilvægt að nemendur komi í skólann til að vinna verkefni sín, annaðhvort á skipulögðum tíma eða samkvæmt samkomulagi við kennara.
Allt nám fer í gegn um námskerfi Innu.
Ekki er mætingarskylda. Áhersla er þó lögð á að nemendur mæti í verkleg verkefni því búnaður er allur á staðnum en bókleg verkefni krefjast síður viðveru.
Kennarar eru á staðnum á kvöldin samkvæmt töflu nema annað sé ákveðið í samráði við nemendur.
Námssamingur og ferilbók – umsókn. Hér má sækja um vinnustaðanám í rafiðngreinum og skoða stöðu umsókna.
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.