Menu

Innsýn í námið

Dreifnám – nám með vinnu

Dreifnám er nám utan dag­skóla sem sam­einar kosti fjar- og kvöld­náms. Áfangi getur verið kenndur að öllu leyti í fjar­námi, að öllu leyti í staðbundnu námi eða að hluta í fjar­námi og hluta í staðbundnum lotum.

Í dreif­námi eru reglu­lega í boði fagáfangar af náms­braut til A-rétt­inda vél­stjórnar (sem til­heyra líka málmiðngreinum og vél­virkjun) og fagáfangar sem nem­endur í skip­stjórn þurfa að taka. Áfanga­framboð er mis­mun­andi milli anna og útgefið fyrir eina önn í einu og fara áfangar í boð ef svigrúm gefst og í kennslu ef næg þátt­taka næst (annars felldir niður í lok inn­rit­un­ar­tíma­bils).

Almenna námið á vél­tækni­brautum (raun­greinar, íslensku og tungumál) má taka í fjar­námi í öðrum skólum og fá metið (sjá nánar um mat á námi).

Um námið og umsóknir

Í staðlotum er verk­legur hluti námsins kenndur og um leið fer gjarnan fram námsmat þannig að skyldu­mæting er í þær. Kennsla í staðlotum fer fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi og/​eða við Flata­hraun í Hafnarfirði.

Mik­il­vægt er fyrir nem­endur, sem vinna þannig vinnu með námi að þeir komast ekki í staðlotur hvenær sem er, að kynna sér vel dag­setn­ingar þeirra og velja áfanga­hópa sem hafa staðlotur á þeim dögum sem þeir komast frá.

Skoða lotuplan á haustönn 2025.

Opið er fyrir umsóknir í dreifnám seinnipart sér­hverrar annar og er þá sótt um nám fyrir næstu önn á eftir. Aug­lýst er hér á vef skólans hvenær opnað er fyrir umsóknir. Athugið að fjöldi umsókna í ein­staka áfanga ræður því hvort þeir fari af stað.

Bók­legur hluti námsins fer fram á kennsluvef skólans (INNU) en verk­legur hluti þess í staðbundnum námslotum (staðlotum).

Á kennsluvef koma fram námsáætlanir og er les­efnið í mörgum til­vikum aðgengi­legt eða til­vísun til þess (bóka og raf­bóka), fyr­ir­lestrar eru gjarnan birtir og kennslu­mynd­skeið eru í mörgum til­vikum notuð.

Lögð eru fyrir verk­efni og próf sem jafn­framt er skilað á sama stað og allar ein­kunnir og upp­lýs­ingar til nem­enda koma fram á kennslu­vefnum.

Námsmat er fjöl­breytt og er stöðugt verið að leggja mat á þekk­ingu nem­andans á meðan á námi stendur með verk­efnum og prófum. Prófin má í mörgum til­vikum taka utan skóla en einnig getur verið nauðsyn­legt að mæta á viðurkenndan prófstað. Nánari leiðbeiningar um framkvæmd námsmats má finna hér.

Nem­endur eru hvattir til að fylgjast vel með skila­dag­setn­ingum verk­efna og prófa og gera ráðstaf­anir tím­an­lega varðandi próf­töku.

Umsagnir

Shape
Shape

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!