Menu

Houdini

Houdini og effektar (FX)

Á nám­skeiðinu kynnast þátt­tak­endur not­endaviðmóti og vinnuflæði for­ritsins Houdini frá SideFX með áherslu á að læra með því að gera.

Við munum byggja kerfi sem má meðal annars nota til að búa til marg­vís­legar plöntur en líka ýmsa aðra strúktúra.

Við munum skoða ýmis kon­sept innan effekta (FX), til dæmis attri­bútur, noise patt­erns, stærðardreif­ingu og ýmsar gagn­legar nóður, til dæmis Copy to Points nóðuna. Markmiðið er að fá góða til­finn­ingu fyrir vinnuflæði Houdini (þ.e. node based procedural work­flow).

Houdini

Námskeiðsgjald

42.000 kr.

Fyrirspurnir

endurmenntun@tskoli.is

Nám­skeiðslýsing

FX er svið innan VFX og Ani­mation sem tekur fyrir að skapa nátt­úruleg og eðlisfræðileg fyr­ir­bæri. Innan þess geta fallið plöntur, landslag og hlutir í umhverfi okkar sem byggjast upp á mynstri eða end­ur­tekn­ingu. Innan sviðsins falla líka fyr­ir­bæri sem eru fram­kölluð með hermunum, til dæmis vatn, reykur, eldur eða neistar. FX tekur fyrir eðlisfræðilega hreyf­ingu hluta, bæði mjúkra hluta sem geta afmyndast og harðra hluta sem halda formi sínu.

Auk þess að vera notað við gerð effekta er Houdini vin­sælt tól við gerð hreyfigrafíkar (Motion Grap­hics).

  • Leiðbeinandi

    Svava Jóhanns­dóttir

  • Hámarksfjöldi

    12

  • Forkröfur

    Almenn tölvuþekking.

  • Fréttabréf

    Skráðu þig á póstlista End­ur­mennt­un­ar­skólans

Nánari upp­lýs­ingar

Alls 10 klst.

Svava Jóhanns­dóttir er effekta hönnuður (FX Artist og FX TD) og effekta kennari. Hún útskrifaðist frá Lost Boys School of Visual Effects árið 2015 og hefur starfað við gerð effekta fyrir kvik­myndir og teikni­myndir í Kanada, Englandi og Svíþjóð m.a. hjá fyr­ir­tækj­unum Dneg, Framestore og Mill Film.

Námskeiðsgjald: 

Nám­skeið End­ur­mennt­un­ar­skólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stétt­ar­fé­laga.

Gjald­fært er af greiðslu­kortum viku áður en nám­skeið hefst.

Nám­skeiðsgjöld eru óaft­ur­kræf nema for­föll séu til­kynnt með a.m.k. þriggja sóla­hringa fyr­ir­vara (virkir dagar) á endurmenntun@tskoli.is

Skrán­ing­ar­gjald er ekki ekki end­ur­greitt.

Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

 

 

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.