Byrjendanámskeið í Indesign þar sem farið verður í helstu atriði varðandi umbrotshönnun og framsetningu á texta, myndum og grafík.
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu TEAMS.
Þátttakendur vinna bækling á námskeiðinu og verður farið skref fyrir skref í gegnum ferlið frá því að skjal er búið til þar til það er tilbúið í prent.
Námskeiðið hentar vel litlum fyrirtækjum, einstaklingum í eigin rekstri eða öðrum sem vilja útbúa sitt eigið kynningarefni.
Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að forritinu til að sækja námskeiðið. Fyrir þá sem ekki hafa aðgang að forritinu er hægt að tengjast sýndarvélum skólans og fá þannig aðgang að forritinu.
ATH: Þegar tengst er sýndarvélum skólans er mikilvægt að vera með gott net/wifi þaðan sem unnið er.
Smelltu hér til að skrá þig á póstlistann og fá reglulegar fréttir af námskeiðum okkar.
Tími:
1. mars | mánudagur | 18:00 – 21:00 |
3. mars | miðvikudagur | 18:00 – 21:00 |
8. mars | mánudagur | 18:00 – 21:00 |
10. mars | miðvikudagur | 18:00 – 21:00 |
15. mars | mánudagur | 18:00 – 21:00 |
Alls 15 klukkutímar
Íris Irma Ernisdóttir.
Íris Irma er grafískur miðlari og kennari í Upplýsingatækniskóla Tækniskólans.
Námskeiðsgjald: 45.000 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Rafrænt efni frá kennara.
Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara (virkir dagar) í síma 514 9602 eða á [email protected]
Til að fá skírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að vera með lágmark 80% mætingu
Kennt er að nota helstu tól forritsins og undirstöðuatriði til að teikna í forritinu. Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu TEAMS.
Já ef þú lætur okkur vita með þriggja daga fyrirvara (virkir dagar) í tölvupósti á [email protected]
Annars býðst þér að fara endurgjaldslaust á næsta námskeið ef það er laust pláss.