Menu

Saumanámskeið – Byrjendur

Þátttakendum er kennt að tileinka sér grundvallaratriði í fatasaumi svo þeir geti unnið á saumavél og saumað flík að eigin vali.

Skráning opnar 1. desember kl. 10:00.

Saumanámskeið

Námskeiðsgjald

59.500 kr.

Dagsetning

14. janúar 2026 - 04. mars 2026

Fyrirspurnir

[email protected]

Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing:

  • Farið í grunnvinnu og unnið með ferilinn að búa til flík.
  • Farið yfir notkun og stillingar saumavélarinnar.
  • Að taka mál og færa inn á máltöflu.
  • Taka upp snið úr blöðum og aðlaga þau.
  • Efni og efnisnotkun, t.d. að leggja snið rétt á efni.
  • Saumför og sniðning.
  • Nýta sér upplýsingar um verkröðun og annað sem fylgir sniðunum
  • Þátttakendur sauma flík að eigin vali og er leiðbeint með val á efnum.
  • Leiðbeinandi

    Linda Húmdís Hafsteinsdóttir

  • Hámarksfjöldi

    8

  • Forkröfur

    Engar

  • Fréttabréf

    Skráðu þig á póstlista Endurmenntunarskólans.

Nánari upplýsingar

Dagsetning Vikudagur Tímasetning
14. janúar Miðvikudagur 18:00–20:30
21. janúar Miðvikudagur 18:00–20:30
28. janúar Miðvikudagur 18:00–20:30
4. febrúar Miðvikudagur 18:00–20:30
11. febrúar Miðvikudagur 18:00–20:30
25. febrúar Miðvikudagur 18:00–20:30
4. mars Miðvikudagur 18:00-20:30

Alls 17,5 klst.

 

Leiðbeinandi er Linda Húmdís Haf­steins­dóttir.

Linda Húmdís er kjóla- og klæðskera­meistari frá Tækni­skól­anum og starfar sem tex­tíl­mennta­kennari í grunn­skóla. Einnig vinnur hún við bún­ingasaum m.a. hjá Íslensku Óper­unni og Borg­ar­leik­húsinu.

Námskeiðsgjald: 59.500 kr.

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Gjald­fært er af greiðslu­kortum viku áður en nám­skeið hefst.

Nám­skeiðsgjöld eru óaft­ur­kræf nema for­föll séu til­kynnt með a.m.k. þriggja sóla­hringa fyr­ir­vara (virkir dagar) á [email protected]

Skrán­ing­ar­gjald er ekki end­ur­greitt:
Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

FAQ

Spurt og svarað

Á ég að koma með eigin saumavél?

Já þátttakendur eru hvattir til að koma með eigin saumavéla. Það er möguleiki á að fá lánaða saumavél í skólanum en þá þarf að hafa samband við [email protected]

Hvað þarf ég að koma með á námskeiðið?

Þátttakendur komi með í fyrsta tíma sníðapappír, blýanta, strokleður og glósubók.

Spurningar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.