Menu

Kafli 5 – Skólanámskrá


Námshæfni

Skólinn leggur áherslu á fjöl­breyttar náms- og kennsluaðferðir sem reyna á mis­mun­andi hæfni nem­enda. Stefna skólans er að auka vægi símats og leiðsagn­ar­náms þar sem því verður við komið. Mikið er um fjöl­breytta verk­efna­vinnu í formi sam­vinnu­náms þar sem nem­endur meta eigin vinnu og annarra í formi jafn­ingjamats og sjálfs­mats.

  • Nemendur fá sérstaka fræðslu um námstækni og mismunandi námsaðferðir í lífsleikni, náttúrulæsi og menningarlæsi. Þar læra þeir að skipuleggja tíma sinn, meta eigin styrkleika og veikleika og læra aðferðir til að efla námshæfni sína.
  • Í greinum eins og lífsleikni, menningarlæsi og náttúrulæsi meta nemendur námslega stöðu sína og gera grein fyrir henni. Þetta gera nemendur einnig í tungumálanámi, hvort sem um móðurmál eða erlend tungumál er að ræða.
  • Í íþróttum og lífsleikni læra nemendur um gildi reglulegrar hreyfingar og fjölbreytts fæðuvals með orðatiltækið „heilbrigð sál í hraustum líkama“ í huga. Nemendum er sýnt fram á, að ef fólk temur sér heilbrigða lífshætti varðandi hreyfingu og mataræði, líður því almennt betur og þar með styrkir það hæfni sína og getu til náms.
  • Í stærðfræðiáföngum eru notaðar fjölbreyttar námsaðferðir, svo sem hópvinna, einstaklingsvinna og jafningjakennsla, töflukennsla, spegluð kennsla, uppgötvunarnám og fleira. Með fjölbreyttum kennsluaðferðum er reynt að koma til móts við nemendur á þeirra eigin forsendum með það að markmiði að auka sjálfstraust þeirra og að allir fái nám við hæfi.
  • Í vinnustofum, námsveri og með jafningjakennslu er leitast við að koma til móts við þá nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda í námi.
  • Tengsl skólans við nærumhverfi eru mikil og einnig við atvinnulífið. Námið er því nátengt raunverulegum viðfangsefnum sem bíða nemenda eftir að námi lýkur. Það eykur áhuga og gefur því gildi.

 

Jafnrétti

Sam­kvæmt jafn­rétt­is­stefnu skólans, er markmiðið að tryggja að nem­endur og starfs­fólk sé metiðað verðleikum og njóti jafn­réttis óháð kynferði, aldri, upp­runa, kyn­hneigð, fötlun og öðrum félags og per­sónu­bundnum þáttum. Jafn­rétt­isáætlun skólans er verk­færi sem hrindir stefn­unni í fram­kvæmd með skipulögðum hætti. Sam­kvæmt henni skulu nem­endur skólans meðal annars njóta fræðslu um jafn­rétt­ismál og fá kynn­ingu á jafn­rétt­is­stefnu skólans, sem og viðbragðsáætlun, ef kvörtun berst.

  • Í skólanum er stuðlað að jafnrétti, lýðræði og mannréttindum. Meðal gilda skólans er virðing. Í skólanum er hverjum nemanda mætt þar sem hann er staddur og virðing er borin fyrir starfsfólki og nemendum.
  • Skólinn býður upp á dreifnám sem gefur nemendum kost á að stunda nám óháð búsetu, vinnutíma eða öðru því sem getur hindrað þá í að stunda nám í dagskóla.
  • Skólinn býður upp á raunfærnimat til þess að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og almennt nám fyrir raunfærninemendur til að greiða leið þeirra inn á námsbrautir skólans.
  • Í mörgum námsgreinum skólans, svo sem tungumálum og íslensku eiga nemendur möguleika á að velja sér verkefni og stýra framsetningu þeirra. Einnig er mikið unnið í hópum þar sem allir eiga jafnan rétt á að tjá skoðanir sínar, meta vinnuframlag samnemenda sinna og hafa þannig áhrif á vinnu og endurgjöf innan hópsins. Þá skipa þeir hver annan í hlutverk innan hópsins.
  • Í íslensku og erlendum tungumálum kynnast nemendur stöðu og réttindum ýmissa þjóðfélagshópa í ólíkum menningarheimum í gegnum ýmsa miðla (kvikmyndir, blaðagreinar, tónlist, texta).
  • Í íþróttum er nemendum gert að þekkja stöðu sína gagnvart samnemendum þannig að hver og einn leitist við að taka mið af eigin hreyfifærni, óháð kyni,  líkamsþyngd og getu.
  • Í lífsleikni, náttúrulæsi og menningarlæsi er tekið sérstaklega á jafnréttismálum. Þar er m.a. lögð áhersla á að allir einstaklingar eigi jafna möguleika til að þroska hæfileika sína óháð kynferði, kynþætti, trúarbrögðum, kynhneigð eða fötlun.
  • Skólinn býður upp á vinnustofur, til dæmis í stærðfræði. Í skólanum er jafningjakennsla og námsver, öllum opið, ætlað til að jafna aðstöðumun nemenda við heimanám og nám almennt.

 

Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar

Í öllum áföngum í erlendum málum er lögð áhersla á skap­andi verk­efni sem reyna á ímynd­un­arafl nem­enda. Sem dæmi má nefna að nem­endur vinna aug­lýs­ingar, blaðagreinar, vegg­spjöld, semja ljóð og smá­sögur og tjá sig um ýmis mál­efni líðandi stundar. Nem­endur lesa bæði smá­sögur og skáld­sögur og vinna marg­vísleg skap­andi verk­efni í tengslum við efnið, þar sem þeir velja sjálfir viðfangs­efni og aðferðir. Má þar nefna skap­andi texta­skrif.

  • Skapandi vinna er mikilvægur þáttur í öllum íslenskuáföngum. Nemendur eiga kost á að skila verkefnum á mismunandi formi, t.d. að flytja verkefni munnlega, setja upp
    leikþætti, útbúa glærukynningar, gera stuttmyndir, rita texta, skáldverk, ljóð og fleira. Þá eru nemendur hvattir til leikhúsferða í efri áföngum. Reynt er eftir föngum að fara í vettvangsferðir í tengslum við námið, s.s. ferð á Njáluslóðir.
  • Í öllum áföngum íþrótta hagnýta nemendur sér þekkingu sem þeir afla sér varðandi hreyfingu. Nemendur gera eigin æfingaáætlanir og læra að fylgja þeim eftir með markvissum hætti.
  • Í stærðfræði er ólíkum lausnaaðferðum beitt og nemendur eru þjálfaðir í að leysa verkefni á fjölbreytilegan hátt.
  • Í lífsleikni vinna nemendur með fjölbreytt verkefni sem reyna á sköpunarhæfni þeirra og ímyndunarafl. Nemendur semja glærukynningu um sig sjálfa og kynna fyrir hópnum.
  • Innan skólans hafa nemendur val um fjölmarga áfanga í skapandi greinum.

 

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar

Í íslensku og erlendum tungu­málum nota nem­endur upp­lýs­inga­tækni í þekk­ing­ar­leit og miðla þekk­ingu á gagn­rýninn og skap­andi hátt. Nem­endur leita að upp­lýs­ingum á ver­ald­ar­vefnum og víðar og vinna með þær á fjöl­breyttan hátt. Þeir nota raf­rænar orðabækur og ýmis forrit við úrvinnslu upp­lýs­inga og fram­setn­ingu þeirra.

  • Í stærðfræðiáföngum er lögð áhersla á að nemendur læri meðferð talna á viðeigandi hátt eftir eðli viðfangsefnisins. Til dæmis er nemendum gert að nýta sér efni sem sett er fram í tölvutæku formi.
  • Í fyrstu áföngum stærðfræðinnar er sérstaklega unnið að því, að nemendur verði læsir á stærðfræðitexta og formúlur og geti fylgt rökfærslu sem sett er á blað.

 

Menntun til sjálfbærni

Skólinn hefur þá stefnu að nálgast for­varnir út frá víðtæku og jákvæðu sjón­ar­horni með það að markmiði að stuðla að vellíðan og auknum árangri allra í skóla­sam­fé­laginu. Lögð er áhersla á fjóra þætti: nær­ingu, hreyf­ingu, geðrækt og lífs­stíl. Með þessari stefnu er nem­endum gerð grein fyrir mik­il­vægi þessara þátta til sjálf­bærni.

  • Í erlendum málum er valið námsefni sem virkar hvetjandi á nemendur og vekur áhuga þeirra og forvitni um ólík samfélög, menningu og umhverfi. Lestextar eru
    sérstaklega valdir með það að markmiði að veita innsýn í aðra menningarheima og efla alþjóðavitund og samfélagslega ábyrgð nemenda.
  • Í áföngum skólans er kennsluefni oft á tölvutæku formi og rafræn skil eru á flestum verkefnum.
  • Í íþróttum fá nemendur reglulega hreyfingu og þar með eflist vitund þeirra um nærumhverfi og heilsu. Þeir öðlast reynslu í læsi á eigin heilsu með tilliti til gildis hreyfingar og heilnæms mataræðis en þetta tvennt stuðlar að góðri heilsu og líðan alla ævi.
  • Í lífsleikni er farið í neytendamál og fjármálalæsi sem miðar að betri vitund um sjálfbærni.
  • Í menningarlæsi læra nemendur um hvernig listir og hönnun geta tengst orðræðunni um sjálfbærni, þegar litið er til miðlunar þekkingar, náttúruauðlinda, umhverfis og félagslegra þátta. Fjallað er um hvernig menning getur haft rík áhrif á hegðun, neyslumynstur og framleiðsluhætti samfélags.

 

Heilbrigði

Í skóla­starfinu er lögð áhersla á heil­brigðan lífs­stíl og það viðhorf almennt lagt til grund­vallar að nem­endur beri ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum.

  • Í allri kennslu og samskiptum við nemendur er áhersla lögð á jákvæð samskipti milli nemenda innbyrðis, sem og milli nemenda og kennara. Slík samskipti stuðla að félagslegu heilbrigði.
  • Í flestum áföngum í skólanum er sjálfsöryggi nemenda styrkt, til dæmis með því að æfa tjáningu og flutning fyrirlestra og ýmiss konar verkefna.
  • Í íslensku eru lesnar bókmenntir og nytjatextar frá ólíkum tímabilum. Í þeim er t.d. tekið á mismunun, ofbeldi, einelti, kyngervi og kynhegðun. Nemendur þurfa að kryfja og ræða textana, taka afstöðu og færa rök fyrir máli sínu.
  • Í íþróttum og lífsleikni er í forvarnarskyni fjallað sérstaklega um andlega, félagslega og líkamlega færni og vellíðan.
  • Í öllum áföngum íþrótta er stuðlað að góðu heilsufari með fjölbreyttum æfingum. Nemendur eru hvattir til að nýta þekkingu og reynslu sína til að tileinka sér heilbrigt líferni og færni í að efla heilsu sína á eigin spýtur – alla ævi.
  • Í íþróttum eru nemendur hvattir til að ala með sér jákvætt viðhorf til heilsuræktar með því að gera þeim ljóst að hver og einn getur stundað þjálfun eftir eigin getu. Þeir eru jafnframt hvattir til að treysta getu sína með endurteknum æfingum.
  • Í lífsleikni og bóklegum tímum í íþróttum er m.a. fjallað um skaðsemi reykinga, áfengis- og vímuefnaneyslu og skaðsemi steranotkunar sérstaklega í sambandi við líkamsrækt.
  • Í íþróttum og lífsleikni er fjallað um mataræði. Þar eru ræddir kostir fjölbreytts mataræðis og hvernig það getur stuðlað að heilbrigðu líferni. Nemendur eru hvattir til að skoða vel hvort rannsóknir liggi að baki því sem mælt er með hverju sinni og meta með gagnrýnum huga það sem þeir lesa eða heyra um mataræði.
  • Í íþróttum er leitast við að draga úr einelti eða útilokun með því að allir taki þátt í leikjum eða keppni. Kennsluform í íþróttum er mismunandi en oft er unnið í hópum eða liðum sem stuðlar að samkennd nemenda.
  • Í lífsleikni fá nemendur kynfræðslu sem eflir vitund þeirra um kynheilbrigði, mikilvægi heilbrigðs kynlífs, getnaðarvarnir og fleira.

 

Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum

Í öllum áföngum erlendra tungu­mála er unnið mark­visst með texta á mark­málinu og fá nem­endur fjöl­breytt tæki­færi til að tjá sig í ræðu og riti. Þeir eiga í sam­skiptum sín á milli á mark­málinu (samtöl, hlustun, kynn­ingar og fleira). Nem­endur eru hvattir til að tjá sig á erlenda málinu um leið og þeir geta og við hvert tæki­færi sem gefst, bæði innan kennslu­stof­unnar og utan.

  • Í áföngum erlendra tungumála kynnast nemendur vel menningu viðkomandi málsvæða og þess lands eða þeirra landa þar sem tungumálið er talað sem móðurmál. Þeir læra einnig að sækja um skóla og vinnu í viðkomandi landi.
  • Nemendur leita að upplýsingum á erlendum vefsíðum á mismunandi tungumálum, vinna úr þeim og tjá sig um innihaldið í ræðu og riti.
  • Nemendur fá tækifæri til að taka þátt í margvíslegum erlendum samskiptum þar sem þeir kynnast menningu, venjum og siðum annarra þjóða. Þessum samskiptum er ætlað að auka víðsýni og umburðarlyndi nemenda og þjálfa þá í menningarlæsi.
  • Í kennslu erlendra tungumála er unnið að því jafnt og þétt að efla orðaforða, lesskilning og máltilfinningu nemenda.

 

Læsi, tjáning og samskipti á íslensku

Skólinn leggur mikla áherslu á vinnu nem­enda þar sem reynir á læsi, tján­ingu og sam­skipti. Það reynir á sam­skipta­hæfni nem­enda í verk­efna­vinnu og tján­ingu í rituðu máli og töluðu við ýmiss konar kynn­ingar.

  • Í öllum áföngum íslensku er lögð áhersla á tjáningu af ýmsu tagi. Dæmi um viðfangsefni eru kynningar á bókmenntum og völdum þáttum í málsögu. Nemendur taka einnig munnleg próf þar sem þeir tjá sig um bókmenntir. Með lestri og textagreiningu er unnið að því að efla lesskilning nemenda í öllum áföngum íslensku.

 

Lýðræði og mannréttindi

Í öllu skóla­starfinu er leitast við að gera nem­endur að virkum og ábyrgum þátt­tak­endum í lýðræðissam­fé­lagi, t.d. með því að kanna viðhorf þeirra til ákveðinna þátta. Á hverri önn er lögð fyrir nem­endur kennslu­könnun þar sem þeir segja álit sitt á áföngum sem þeir hafa setið.

  • Í erlendum tungumálum, lífsleikni, íslensku, menningarlæsi og náttúrulæsi er námsmati að hluta til háttað þannig að nemendur hafa sjálfir áhrif á námsmat sitt og félaga sinna í hópastarfi með sjálfsmati og jafningjamati. Nemendur venjast því að bera virðingu fyrir manngildi hvers og eins í hópnum eins og í stærri lýðræðissamfélögum, þá þurfa þeir að virða skoðanir annarra. Í skólanum er lögð áhersla á sjálfstæði nemenda þar sem hver og einn er ábyrgur fyrir eigin námi og hefur að einhverju leyti val um verkefni í áföngum.
  • Í enskuáföngum eru nemendur þjálfaðir í að taka afstöðu til siðferðilegra álitamála í tengslum við bókmenntir og taka þátt í rökræðum um ýmis mál með því til dæmis að halda ræðu um ákveðin málefni. Þeir lesa einnig texta sem fjalla um mannréttindamál.
  • Í öllum áföngum íslensku eru lesin bókmenntaverk þar sem lýðræði og mannréttindi eru í brennidepli. Nemendur þurfa að færa rök fyrir máli sínu og átta sig á siðferðilegum gildum.
  • Í skólanum er upplýsingatækni mikið notuð, bæði í dagskóla og í dreifnámi. Til þess að vera virkur í lýðræðissamfélagi þarf einstaklingurinn að vera upplýsingalæsi þar sem tölvur og önnur tækni verður sífellt fyrirferðarmeiri þáttur í nútímasamfélagi. Nemendur eru þjálfaðir í upplýsingalæsi en í dag telst slíkt læsi til ákveðinna mannréttinda.
  • Skólinn leitast við að taka á móti fjölbreyttum hópi nemenda, bæði er varðar bakgrunn og fyrri námsárangur. Skólinn hefur það að markmiði að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur og hjálpa honum að rækta hæfileika sína.

 


Uppfært 6. desember 2024
Áfangastjórn