Menu

Kafli 19 – Skólanámskrá


Skólaráð

Í Tækni­skól­anum er skólaráð sem hefur það hlut­verk er að vera skóla­meistara til samráðs og aðstoðar. Það fjallar um starfs­áætlun skólans og fram­kvæmd hennar, skóla­reglur, umgengn­is­hætti í skól­anum, vinnu- og félagsaðstöðu nem­enda og stefnu­mótun skólans auk annarra mála sem vísað er til skólaráðs. Skólaráð stendur jafn­framt fyrir árlegum opnum skóla­fundi sem er lýðræðislegur vett­vangur til skoðana­skipta og ábend­inga um skóla­starfið.

Skólaráð er skipað til eins árs í senn. Skóla­meistari er odd­viti skólaráðs en auk hans er ráðið skipað aðstoðarskóla­meistara, full­trúum nem­enda, full­trúum kennara og félags­mála­full­trúa. Aðrir eru kallaðir inn eftir atvikum. Skólaráð starfar á starfs­tíma skóla og eru fundir haldnir a.m.k. einu sinni á önn. Ráðið má kalla saman oftar beri nauðsyn til.

 

Skólanefnd

Skóla­nefnd skólans er skipuð stjórn skólans, skóla­meistara ásamt einum kennara og einum nem­anda. Nefndin fundar á sex mánaða fresti.

 

Kennara- og starfsmannafundir

Starfs­manna­fundir eru haldnir að lág­marki tvisvar á önn og sama gildir um kenn­ar­a­fundi.

 

Skóladagatal

Skóla­árinu er skipt upp í tvær annir og hver önn skiptist í tvær spannir. Haustönn hefst upp úr miðjum ágúst og vorönn lýkur fyrir lok maí. Skóla­meistari og aðstoðarskóla­meistari leggja drög að skóla­da­ga­tali fyrir næsta skólaár til samþykktar í Rekstr­arráði. Skóla­da­gatal er birt á vefsíðu skólans, með fyr­ir­vara um hugs­an­legar breyt­ingar.

Skóladagatal – skólaárið

 

 

Uppfært 9. desember 2024
Áfangastjórn