Starfendarannsóknir
Starfendarannsóknir í Tækniskólanum
Í Tækniskólanum er starfandi starfendarannsóknahópur sem skapar vettvang fyrir faglegt samtal, ígrundun og þróun kennsluhátta. Þar kemur starfsfólk saman til að rýna í eigið starf, deila reynslu og prófa nýjar leiðir með nám og velferð nemenda að leiðarljósi. Einkunnarorð hópsins eru: „Vöxum saman“.
Starfendarannsóknir byggjast á því að kennarar og annað fagfólk rannsaki eigin starfshætti með markvissum hætti. Útgangspunkturinn er gjarnan spurning úr daglegu starfi: Hvernig get ég aukið þátttöku nemenda? Hvað stuðlar að góðri hópvinnu? Hvernig nýtist endurgjöfin mín? Þátttakendur afmarka viðfangsefni, prófa breytingar, safna upplýsingum og ígrunda hvað þær segja um starfið. Þannig verður til þekking sem getur nýst bæði þeim sjálfum og samstarfsfólki.
Viðfangsefni hópsins endurspegla fjölbreytni skólastarfsins. Meðal þess sem þátttakendur hafa fengist við eru hópavinna, rannsóknarmenning, námsefnisgerð, vinnuvernd, altæk hönnun náms og nám nemenda á íslenskubraut. Á fundum gefst tækifæri til að kynna hugmyndir og verkefni, ræða áskoranir og fá uppbyggilega endurgjöf.
Ráðgjafar og verkefnisstjórn
Fyrsta starfsár hópsins 2024-2025 var ytri ráðgjafi Sigurrós Erlingsdóttir. Skólaárið 2025–2026 naut hópurinn ráðgjafar Guðrúnar Ragnarsdóttur og Súsönnu Margrétar Gestsdóttur frá Háskóla Íslands. Ráðgjafi hópsins skólaárið 2026-2027 er Þorsteinn Árnason Sürmeli, einnig frá HÍ.
Ekki er skilyrði að vera með fullmótaða rannsóknarhugmynd eða vinna formlega starfendarannsókn til að taka þátt. Áhugi á að ígrunda eigið starf, læra með öðrum og leggja sitt af mörkum til samtalsins er góður upphafspunktur. Starfið miðar að því að efla lærdómssamfélag innan Tækniskólans, þar sem reynsla og þekking starfsfólks fær að njóta sín og verða öðrum að gagni.
Hér að neðan má nálgast ýmsar upplýsingar um starfendarannsóknir í Tækniskólanum.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Halldóra Pálsdóttir, verkefnisstjóri starfendarannsókna,
[email protected].