Sækja office pakka
Síðast uppfært: 23. Október 2024
Yfirlit:
1. Vefsíða Office 365
Farið inn á vefsíðu Tækniskólans og scrollið aðeins niður. Lítil runa mun birtast neðst og eigið að smella á „Vefpóstur“ þar.
Einnig getið þið farið beint með þessum hlekk: Vefpóstur
2. Innskráning
Skráið ykkur inn með netfangi sem skólinn gefur ykkur. Fyrir starfsmenn er það upphafsstafir@tskoli.is. Fyrir upplýsingar um nemendanetföng, smellið hér
Smellið svo á next og setjið næst inn lykilorðið ykkar. Það er sama lykilorð og þið notið á tölvur skólans. Ef þið munið ekki lykilorðið getið þið séð leiðbeiningar til að endursetja það hér
3. Nálgast Office
Smellið á punktana uppi í vinstra horni síðunnar.
Smellið á „Microsoft 365“.
Næst smellið á „Install and more“ og þar undir smellið „Install Microsoft 365 apps“.
Að lokum smellið á „Install Office“ til að sækja Office pakkann.
4. Uppsetning Office
Finnið skránna í vafranum ykkar eða í Downloads möppunni á tölvunni ykkar. Opnið skránna til að hefja uppsetningu á Office. Veljið „Yes“ þegar Windows biður um leyfi til að ræsa uppsetninguna. Office mun síðan klára uppsetninguna sjálft og mun ekki þurfa meira frá ykkur.
Þegar uppsetningin klárast getið þið smellt á „Close“ takkann í glugganum og byrjað að nota Office.