Lykilorð
Það er hægt að fara inn á www.lykilord.tskoli.is. Þar er sett inn persónulega netfangið þitt (t.d. gmail eða live email, það sem er skráð í Innu sem persónulegur tölvupóstur) og svo ýtt á senda hnappinn. Þá færðu sendan póst á persónulega tölvupóstinn þinn með notendanafninu þínu og skólanetfangi og hlekki sem leyfir nemendum að breyta lykilorði.
ATH. Hlekkurinn virkar bara i 15 mínútur.
ATH. lykilorð þarf að vera að lágmarki 8 stafa langt, einn hástaf, einn lágstaf, einn tölustafur og má ekki vera hluti af nafni eða kennitölu aðilans.
Ef þið finnið ekki póstinn, athugið fyrst rusl hólfið ykkar og ef það finnst ekki þar þá skulið þið hafa samband við Tölvudeildina með því að senda póst á tolvuthjonusta@tskoli.is, hringja í síma 514 9050 eða kíkja við á skrifstofu hjá okkur.
Leiðbeiningar í myndbandi
Hér að neðan má sjá myndband af því hvernig breyta á persónuupplýsingum á Innu og endursetja lykilorð i skólakerfinu:
Skriflegar leiðbeiningar
Hér að neðan má sjá skriflegar leiðbeiningar um það hvernig á að breyta persónuupplýsingum á Innu og endursetja lykilorð i skólakerfinu:
1. Finna og breyta einkanetfangi
Farið inn á Innu og svo veljið stillingar og í stillingum finnið „Breyta persónuupplýsingum“ kaflann og stækkið hann.
Hér er hægt að sjá einkanetfangið ykkar, ef þið þurfið þá er hægt að breyta því og ýta á vista takkann.
2. Fá tímabundna hlekk sendan vegna einkanetfangs
Farið inn á www.lykilord.tskoli.is og þar setið þið inn einkanetfangið ykkar úr skrefi 1.
Eftir stutta stund eigið þið að fá tölvupóst með hlekki sem leyfir ykkur að endursetja lykilorðið ykkar.
ATH: Ef þið finnið ekki póstinn, athugið fyrst ruslhólfið ykkar og ef það finnst ekki þar þá skulið þið hafa samband við Tölvudeildina með því að senda póst á tolvuthjonustats@tskoli.is, hringja í eitt af símanúmerum okkar sem má finna á upplýsingasíðu okkar eða kíkja við á skriftstofu hjá okkur.
3. Endursetja lykilorð
Opnið hlekkinn sem þið fenguð úr skrefi 2, hér er hægt að setja nýtt lykilorð athugið samt að lykilorð þarf að vera að lágmarki 8 stafa langt, einn hástaf, einn lágstaf, einn tölustafur og má ekki vera hluti af nafni eða kennitölu aðilans.
ATH: Þessi hlekkur virkar bara í 15 mínutur!