Menu

Annarlok – upplýsingar um síðasta kennsludag hjá kennara og í Innu

Síðasti starfs­dagur sam­kvæmt námsáætlun og stunda­skrám er birtur í skóladagatali en kennslulok geta verið mis­mun­andi eftir áfanga. Nánari upp­lýs­ingar um skipulag hvers áfanga eru á Innu.

Á náms­mats­dögum fer það eftir skipu­lagi áfanga hvort nem­endur þurfa að mæta í próf/​end­ur­töku­próf/​vinna í verk­efnum eða skila síðustu verk­efn­unum en hver nem­andi fær upp­lýs­ingar um það hjá sínum kennara.

 

Próf og verkefni – upplýsingar í Innu

Kenn­arar setja próf og verk­efni í Innu þannig að nem­endur sjá nákvæm­lega hvenær á að skila öllum verk­efnum og taka öll próf (dag­setn­ingar og tíma­setn­ingar). Nem­endur eru hvattir til að yfir­fara þetta vand­lega í öllum áföngum og vera í sam­bandi við kennara ef þeir hafa spurn­ingar eða athuga­semdir.

 

Lokaeinkunnir, námsmat og endurgjöf

Loka­ein­kunnir verða birtar í Innu þann 16. des­ember. Nem­endur eru hvattir til að skoða námsmat og fara yfir ein­kunnir. Kennara verða til viðtals í sínum deildum kl. 10:00-12:00.

 

Upptökupróf fyrir útskriftarefni

Nem­andi á útskriftarönn sem getur ekki útskrifast vegna falls í einum eða tveimur áföngum getur fengið heimild til að taka upp­töku­próf í áfang­anum eða áföng­unum ef hægt er að koma því við í samráði við viðkom­andi skóla­stjóra og ef upp­töku­próf er fram­kvæm­an­legt vegna umfangs áfangans. Ef áfanginn er verk­legur er ekki fram­kvæm­an­legt að taka upp­töku­próf. Nem­andi skráir sig í upp­töku­próf á skrif­stofu og greiðir þar skrán­ing­ar­gjald í síðasta lagi á loka­náms­mats­degi. Ein­kunn fyrir úrlausn í upp­töku­prófi gildir sem loka­ein­kunn í áfang­anum. Upp­töku­próf verða haldin 17. des­ember kl. 10:00.

Sjá gjaldskrá fyrir upp­töku­próf fyrir útskrift­ar­efni.

 

Brautskráning Tækniskólans

Braut­skráning skólans verður þann  18. des­ember í Eld­borg­arsal Hörpu.

 

Skóladagatal

Mik­il­vægar dag­setn­ingar eru í skóladagatali, í Innu og í viðburðardagatali á vef skólans.

 

 

 

 

Uppfært 25. október 2024
Áfangastjórn