fbpx
Menu

Nemendur

Starfsnám í Skotlandi

Hafrún Harðardóttir, nem­andi í Hand­verks­skól­anum, er um þessar mundir í spenn­andi starfs­námi hjá Blues and Browns í Perth, Skotlandi.

Era­smus+ veitir nem­endum í starfs­mennta­skólum og nemum á samn­ingi tæki­færi til að fara í náms- og þjálf­un­arferðir og starfsnám hjá fyr­ir­tækjum í Evrópu.

Klæðskurður í gamalli borg

„Fyr­ir­tækið sem ég er hjá heitir Blues and Browns og var stofnað fyrir 17 árum. Í augna­blikinu erum við þrjár að vinna þar, ég, eig­andinn og klæðskerinn. Í sumar vorum við með annan nema tvisvar í viku en hún er farin aftur í skóla. Sauma­verkstæðið og búðin eru í litlu húsnæði í miðbæ Perth og er mest „made to mea­sure“ kven­fatnaður úr silki, tartan og tweed. Ég hef fengið að sauma eig­in­lega hvað sem er, meðal annars buxur, pils, skyrtur, jakka og auka­hluti. Flest geri ég fyrir búðina en klæðskerinn sér sjálf um mest allan sérsaum á kúnna.

Ég bý með kær­ast­anum mínum í miðbænum svo það tekur enga stund að ganga í vinnuna, búðina eða á æfingu. Við erum búin að koma okkur vel fyrir, kynnast fullt af fólki og eignast vini. Borgin er mjög gömul og falleg en með fram henni rennur áin Tay. Er mjög ánægð að fá að vera í heilt ár.“

 

Tækniskólinn sækir árlega um Erasmus+ styrki til Rannís

Era­smus+ veitir nem­endum í starfs­mennta­skólum og nemum á samn­ingi tæki­færi til að fara í náms- og þjálf­un­arferðir og starfsnám hjá fyr­ir­tækjum, skólum og stofn­unum í Evrópu í 2 vikur til 12 mánuði. Námið/þ​​jálf­unin skal vera hluti af námi viðkom­andi nem­anda og metið sem slíkt að dvöl lok­inni.

 

Verk­efni frá nem­endum

For­rit­un­ar­keppni fram­halds­skól­anna

Glæsilegur árangur nemenda

Útskriftarsýning hársnyrtideildar

Bíómyndaþema

T-ið í TÆKNÓ

Glænýtt skólablað