fbpx
Menu

Rafræn vöktun

Í húsnæði Tækni­skólans fer fram rafræn vöktun með eft­ir­lits­mynda­vélum í öryggis- og eigna­vörslu­skyni. Um er að ræða mynd­bands­upp­tökur án hljóðs.

Tækni­skólinn er ábyrgðaraðili vökt­un­ar­innar og tryggir öryggi per­sónu­upp­lýs­inga þeirra sem vöktun sæta. Tækni­skól­anum er annt um að allir sem sæti vöktun séu þess varir og því gerir Tækni­skólinn grein fyrir vöktun með skýrum hætti.

Við vökt­unina er sér­stak­lega hugað að því að gæta meðalhófs og að ganga ekki lengra en þörf krefur til að virða einka­lífs­rétt þeirra er vökt­unin beinist að. Vökt­unin fer ein­göngu fram í skýrum, mál­efna­legum og lög­mætum til­gangi.

Ákveðnir verk­ferlar gilda um skoðun mynd­efnis úr örygg­is­mynda­vélum og er slíkt ein­ungis skoðað af þeim sem hafa til þess skýra heimild.

 

Umfang vöktunar

Mynda­vélar eru upp­settar víða á ytri skel skóla­húsnæðis Tækni­skólans og á almennum svæðum inn­an­húss þar sem vöktun er talin nauðsynleg. Staðsetn­ingar eru auðkenndar með skilti sem komið er fyrir á áber­andi stað á hverju vökt­un­arsvæði. Leyni­legar upp­tökur eru með öllu bannaðar.

Almennt eru kennslu­rými ekki vöktuð. Und­an­tekn­ingar á því eru í kennslu­rými þar sem er aukin slysa­hætta svo sem véla og tækja­salir.

Rauntímavöktun fer aðeins fram á almennum rýmum svo sem mötu­neyti og ferðarýmum s.s. gangar og inn­gangar að skóla­húsnæði. Engin raun­tíma­vöktun fer fram í kennslu­rýmum og aðeins heimilt að skoða upp­tökur úr kennslu­rýmum þegar brýn ástæða er til, svo sem slys eða brotamál.

 

Réttur þeirra sem vöktun sæta

Sá sem sætt hefur raf­rænni vöktun á rétt á að skoða gögn sem til verða um viðkom­andi við vökt­unina. Skal heimila skoðun jafn fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá mót­töku slíkrar beiðni. Þetta á þó ekki við ef réttur þess sem sætt hefur vökt­un­inni til að fá að skoða gögnin þykir eiga að víkja að nokkru eða öllu fyrir hags­munum annarra en hans eigin. Ef óljóst er hvort verða á við beiðni um skoðun eða hlustun er efni sent til lög­reglu eða Per­sónu­verndar til skoðunar.

 

Afhending persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Upp­lýs­ingar um afhend­ingu per­sónu­upp­lýs­inga sem verða við raf­ræna vöktun:

  • Tækniskólinn miðlar ekki persónuupplýsingum sem verða til við rafræna vöktun nema með skýru samþykki viðkomandi eða ef mælt er fyrir um miðlun upplýsinganna í lögum.
  • Tækniskólanum er skylt að afhenda lögreglu efni sem verður til við rafræna vöktun ef upplýsingar varða slys eða meintan refsiverðan verknað.
  • Tækniskólinn kann að miðla upplýsingum ef þær eru nauðsynlegar einum eða fleiri hinna skráðu til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja, t.d. þegar tryggingafélag tekur afstöðu til bótaskyldu.
  • Tækniskólinn kann einnig að miðla upplýsingum ef ákvörðun Persónuverndar um miðlun upplýsinganna liggur fyrir.

 

Varðveisla persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun

Upp­lýs­ingar sem verða til við raf­ræna vöktun verða varðveittar í 30 daga skv. 11. gr. reglna nr. 50/​2023 um raf­ræna vöktun. Tækni­skólinn eyðir upp­tökum að þeim tíma liðnum. Þetta á ekki við um upp­tökur sem hafa verið sendar lög­reglu vegna slysa eða refsiverðra mála, upp­tökur vegna sönn­unar krafna í dóms­málum eða annarra slíkra laganauðsynja eða að Per­sónu­vernd heimili sér­stak­lega eða mæli fyrir um lengri varðveislu­tíma.

 

Andmæli við framkvæmd vöktunar

Kom fram athuga­semdir eða and­mæli við fram­kvæmd vökt­unar og/​eða ábend­ingar um að hún upp­fylli ekki þær kröfur sem settar eru í reglum þessum eða lögum skal hafa sam­band við per­sónu­verndar­full­trúa Tækni­skólans með því að senda tölvu­póst á net­fangið personuvernd@tskoli.is eða hringja í síma 514 9000.

 

Lög og reglur

Reglur Tækni­skólans um örygg­is­vöktun byggja á:

  • lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (90/2018)
  • reglum um rafræna vöktun (50/2023)

 

Uppfært 20.09.2023
Gæðastjóri