10. ágúst 2026
Innskráning
Inna – Upplýsingakerfi
Inna er upplýsingakerfi skólans sem heldur utan um alla þætti náms hjá nemendum, m.a. lokaeinkunnir, mætingu og námsferil. Canvas er námsvefur skólans, og er þar m.a. hægt að nálgast námsáætlanir áfanga og námsgagnalista. Mikilvægt er að nemendur gæti þess að netföng þeirra og símanúmer séu rétt skráð í Innu. Tengill inn á Innu er neðst á vefsíðu Tækniskólans.
Innskráning
Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu. Rafrænu skilríkin þarf að virkja áður en nemandinn getur skráð sig inn. Hér má sjá upplýsingar um hvernig nemendur geta sótt rafræn skilríki í símann sinn og afgreiðslustaði þeirra.
Students and parents are only to use ID number for Inna Digital Certificates.
