Menu

Fréttir

29. maí 2026

10 ár af framsækni og nýsköpun

Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans.

Árið 2016 hóf ný og metnaðarfull stúdentsbraut göngu sína við Tækniskólann. Brautin fékk nafnið K2 tækni- og vísindaleið og frá fyrsta degi var markmiðið skýrt, að skapa námsumhverfi fyrir framsækna og metnaðarfulla nemendur sem vildu nálgast nám með öðrum hætti en tíðkaðist í hefðbundnu bóknámi. Áherslan skyldi vera á tækni, vísindi, nýsköpun, skapandi hugsun og verkefnamiðað nám sem endurspeglaði samfélag framtíðarinnar.

„Mig langar til þess að skapa vettvang fyrir framúrskarandi nemendur sem fá tækifæri til þess að taka stúdentspróf á óhefðbundinn hátt. Hjálpa þeim að þroskast í takt við nútíma kennsluaðferðir, með áherslu á tækni og vísindi.“

Með þessum orðum Jóns B. Stefánssonar, þáverandi skólameistara Tækniskólans, hófst vegferð K2 og haustið 2016 settist fyrsti hópur nemenda á skólabekk. Tíu árum síðar hefur brautin fest sig í sessi sem ein framsæknasta stúdentsleið landsins.

Á þessum áratug hafa orðið gríðarlegar tæknibreytingar. Gervigreind hefur orðið hluti af daglegu lífi, stafrænn heimur tekið stakkaskiptum og nýjar áskoranir kallað á nýja hugsun í menntun. K2 hefur frá upphafi verið byggð á þeirri hugmynd að skólakerfið þurfi að þróast samhliða samfélaginu sjálfu. Því hefur brautin lagt áherslu á sjálfstæði, gagnrýna hugsun, lausnaleit, teymisvinnu og hæfni til að takast á við raunveruleg verkefni.

Nemendur á brautinni hafa á þessum tíu árum látið verulega að sér kveða – bæði innan veggja skólans og langt út fyrir þá. Sem dæmi hafa nemendur ítrekað náð framúrskarandi árangri í frumkvöðla- og nýsköpunarkeppnum á borð við Unga frumkvöðla, þar sem lið frá K2 hafa unnið til verðlauna fyrir hugvit, tæknilausnir og skapandi nálgun. Þar hafa sprottið fram verkefni sem sameina tækni, samfélagsábyrgð og nýja hugsun með eftirtektarverðum hætti. Þannig hefur brautin skapað vettvang fyrir fjölbreytt skapandi verkefni. Nemendur hafa m.a. tekið þátt í heimildamyndagerð, samfélagslegum umhverfisverkefnum og rannsóknum sem hafa vakið athygli bæði innan skólasamfélagsins og utan þess. Þá hafa K2 nemendur verið áberandi í félagslífi Tækniskólans, tekið þátt í Gettu betur, kynnt skólann opinberlega og verið virkir þátttakendur í mótun öflugs skólasamfélags.

Árangur brautarinnar sést ekki síst í því hvert nemendur halda að námi loknu. Fyrrum nemendur hafa haldið til náms í verkfræði, tölvunarfræði, læknisfræði og öðrum krefjandi greinum bæði hérlendis og erlendis. Nemendur hafa farið í Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík og þá lauk einn nemandi nýlega námi í Harvard háskóla í Bandaríkjunum. Aðrir hafa farið óhefðbundnari leiðir og látið að sér kveða á sviði lista og menningar – meðal annars á sviði Evrópsku söngvakeppninnar.

Ekki síður hefur árangur brautarinnar byggst á öflugum hópi kennara sem hafa frá upphafi lagt metnað sinn í að þróa skapandi og nútímalega kennsluhætti. Kennarar á K2 hafa sýnt mikla framsýni, fagmennsku og alúð í starfi og skapað námsumhverfi þar sem nemendur eru hvattir til sjálfstæðrar hugsunar, frumkvæðis og áræðni. Sú menning sem byggst hefur upp innan brautarinnar er ekki síst til komin vegna kennara sem hafa þorað að fara nýjar leiðir og lagt sig fram um að tengja námið við samfélagið, tæknina og framtíðina sjálfa.

K2 hefur frá upphafi verið meira en hefðbundin námsbraut. Hún hefur verið tilraun í því hvernig framtíðarmenntun getur litið út, námsumhverfi þar sem tæknin er verkfæri, sköpun drifkraftur og nemendur hvattir til þess að spyrja spurninga, prófa sig áfram og hafa áhrif á samfélagið í kringum sig. Á þessum tímamótum er ljóst að K2 hefur skapað sér sérstöðu í íslensku framhaldsskólaumhverfi. Brautin hefur þróast í takt við tímann en haldið fast í kjarnann sem hún var byggð á frá upphafi sem er að gefa ungu fólki tækifæri til að vaxa, skapa og takast á við framtíðina af metnaði, þekkingu og hugrekki.