04. júní 2024
Aðalfundur Tækniskólans
Aðalfundur Tækniskólans verður haldinn í hátíðarsal skólans á Háteigsvegi miðvikudaginn 12. júní kl. 13.00.
Fundurinn er öllum opinn en við biðjum þau sem hyggjast mæta vinsamlegast um að skrá sig.
Dagskrá

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra um hag félagsins, starfsemi þess undanfarið ár og fyrirætlanir um komandi tíma.
- Ársreikningar 2023 lagðir fram til samþykktar, ásamt áliti endurskoðanda.
- Meðferð hagnaðar/taps 2023.
- Kjör stjórnar.
- Kjör endurskoðanda.
- Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna og endurskoðanda.
- Samþykki starfskjarastefnu fyrir félagið.
- Önnur mál.