Ævintýri á útskriftarsýningu hársnyrtinema

Útskriftarsýning hársnyrtinema Tækniskólans verður haldin í Gamla Nasa við Thorvaldsenstræti 2 miðvikudaginn 28. október kl. 20:00. Þema sýningarinnar í ár er Ævintýri og vinnur hver nemandi með sína túlkun á þemanu á þremur módelum.
Sjóræningjar, nornir og galdrar
Undirbúningur sýningarinnar hófst í fyrstu vikunni eftir sumarfrí. Nemendur lögðu fram 15 hugmyndir að þema og kusu um bestu tillöguna sem var að lokum Ævintýri. Hver nemandi valdi sér síðan eigið undirþema og meðal þess sem gestir geta búist við eru hárgreiðslur innblásnar af sjóræningjum, nornum og göldrum, sírenum og Þyrnirós
Undanfarnar vikur hefur undirbúningur verið í fullum gangi, bæði innan skólans og utan. Nemendur hafa skipt með sér verkefnum í nefndum og æft útfærslur sínar á dúkkuhausum og módelum.
Nemendur hlakka til að taka á móti gestum og sýna afrakstur vinnunnar á ævintýralegu kvöldi. Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook. Verið öll velkomin!
Athugið að bílastæði eru í bílastæðahúsum í nágrenninu, meðal annars í Ráðhúskjallara og við Vesturgötu.