26. maí 2020
Innritun opin
Lokainnritun 10. bekkinga er opin til 10. júní
Nemendur úr 10. bekk hafa tíma til og með 10. júní til að ganga frá umsókn sem fer fram í gegnum innritunarvef Menntamálastofnunar.
Dagskóli – almenn innritun opin til 31. maí
Innritun í dagskóla fer fram á innritunarvef Menntamálastofnunar og hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar þar. Umsóknir í dagskóla sem berast eftir 31. maí fara á biðlista um skólavist.
Inntökuskilyrði eru mismunandi á brautum. Fyrir sumar brautir s.s. í ljósmyndun, gullsmíði og K2 þarf að skila ferilmöppu, greinargerð og eða mæta í viðtal – sjá nánar á síðu brautar.
Upplýsingar eru á hverri braut – sjá allar brautir.
Dreifnám/ Fjarnám með staðlotum
Innritun lýkur í upphafi kennslu. Athugið að hópar geta fyllst.