Menu

Fréttir

15. febrúar 2025

Árshátíð TÆKNÓ og MH

Great Gatsby þema

Tækniskólinn og Menntaskólinn við Hamrahlíð halda árshátíð á Hvalasafninu miðvikudaginn 26. febrúar í anda The Great Gatsby. Salurinn opnar kl. 22:00 og lokar 01:00.

Miðasala er hafin! Miðaverð er 4.990 kr. fyrir nemendur Tækniskólans en 5.990 kr. fyrir gesti. Ölvun ógildir miðann og miðar keyptir af nemendum annarra skóla á innanskólaverði eru sömuleiðis ógildir.

Nemendur fá frí í fyrstu tveimur kennslustundum á fimmtudagsmorgni og mæta í tíma kl. 10:25.

Tónlist í boði:

  • DJ Kollz x Viktoria Storm
  • Inspector Spacetime
  • Birnir
  • BlazRoca
  • Issi

Ekki missa af þessu og nælið ykkur í miða!