Átótjúnið 2024
Söngkeppni Tækniskólans fer fram í Mengi miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20:00 og er frítt inn.
Kynnir á keppninni er Daníel Dagur Hermannsson meistari og nemandi á hönnunar- og nýsköpunarbraut.
Sigurvegari keppninnar tekur síðan þátt fyrir hönd skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna 2024 sem verður laugardaginn 6. apríl á Selfossi.
Keppendur í Átótjúninu 2024 eru:
Arantxa Ysabella Aguilera Sandoval – All I Ask með Adele
Árni Hrafn Hrólfsson – Dig með Mudvayne
Daníel Magni Þórunnarson Moss – The devil wears a suit and tie með Colter wall
Guðrún Eva Eiríksdóttir – Stay með Rihanna og Mikky Ekko
Helga Lilja Eyþórsdóttir – Ekkert breytir því með Sálinni hans Jóns míns
Ívar Máni Hrannarsson – Crescented, frumsamið lag
Natanael Andreas – Focus On The Dream, frumsamið (Nuclear Nathan)
Ragnar Ágúst Ómarsson – Creep með Richard Cheese
Yiannis Voulgarakis – Might Love Myself með Beartooth
Yiannis Voulgarakis sigraði Átótjúnið 2024 og óskum við honum hjartanlega til hamingju!
Lesa má nánar um úrslit keppninnar á Facebook síðu Tækniskólans: