21. apríl 2026
Auka opið hús hjá Tækniskólanum
Vegna mikils áhuga á Opnu húsi hjá Tækniskólanum, þann 15. apríl síðastliðinn, býður skólinn nú upp á AUKA Opið hús fyrir þau sem misstu af fyrri kynningu. Markmiðið er að gefa áhugasömum nemendum tækifæri til þess að kynna sér fjölbreytt námsframboð skólans, hitta starfsfólk og nemendur og skoða aðstöðuna í skólanum.
Tækniskólinn er með starfsemi á fleiri en einum stað á höfuðborgarsvæðinu og verða því þrjár kynningar í boði, hver á sínum stað:
- Hafnarfjörður – þriðjudagur 5. maí – kl. 16:00–17:00
- Háteigsvegur – miðvikudagur 6. maí – kl. 16:00–17:00
- Skólavörðuholt – fimmtudagur 7. maí – kl. 16:00–17:00

Dagskrá kynninga
- 16:00 – Móttaka í anddyri
- 16:20 – Kynning á námi skólans
- 16:40 – Skoðunarferð um húsnæði
Á staðnum verða námsráðgjafar sem veita upplýsingar og svara spurningum, auk fulltrúa frá nemendafélagi skólans sem kynna öflugt félagslíf.
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig fyrirfram á sérstakt skráningarform hér að neðan: