fbpx
en
Menu
en

Fréttir

12. ágúst 2020

Bréf til nem­enda vegna Covid-19

Kæru nem­endur og forráðamenn (The text in English here)

Þá líður að upp­hafi ann­ar­innar. Eins og þið vitið búum við nú við ákveðnar tak­mark­anir tengdar COVID-19, bæði hvað varðar fjölda sem mega koma saman (100) og leyfi­lega fjarlægð milli ein­stak­linga (2 m). Okkur er því nokkur vandi á höndum að skipu­leggja skóla­starfið sem verður að öllum lík­indum blanda af stað- og fjar­námi fyrir flesta í haust. Í gær og í dag hefur verið reifuð hugmynd um 1 metra reglu. Verði hún að veruleika mun hún einfalda allt skipulag verulega og gera fleirum kleift að vera í skólabyggingum okkar í einu og þar með kenna meira á staðnum en ella.

Til stóð að birta stunda­töflur nú á föstudag (14. ágúst) en í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir og að nýjar reglur um tak­mark­anir hafa ekki verið kynntar erum við í biðstöðu með að ljúka stunda­töflugerð. Því munuð þið ekki fá stunda­töflur fyrr en í næstu viku. Ég mun senda ykkur frekari upp­lýs­ingar um það í lok vik­unnar.

Þá mun fyr­ir­komulag skóla­setn­ingar fyrir nýnema sem stóð til að yrði í þremur athöfnum 19. ágúst breytast og verður mót­taka nýnema kynnt betur í pósti til þeirra á næstu dögum.

Ég vona að þið hafið notið sum­arsins og hlakkið til að hefja námið í haust. Við hlökkum sann­ar­lega til taka á móti ykkur. Við förum bjartsýn inn í þessa önn en verðum jafn­framt viðbúin að bregðast við þeim aðstæðum sem upp kunna að koma. Öryggi og velferð nem­enda okkar og starfs­fólks er númer 1, 2 og 3.

Bestu kveðjur, Hildur skóla­meistari