fbpx
Menu

Fréttir

03. nóvember 2021

Dimmitering útskriftarnema

Dimmitering útskriftarnema

Dimmitering Tækniskólans haustið 2021 fer fram föstudaginn 19. nóvember. Skólinn býður upp á hamborgara, franskar og gos fyrir þá sem taka þátt ásamt því að standa fyrir ratleik um miðbæinn.

Skráning í Dimmiteringuna er hafin og lýkur henni mánudaginn 15. nóvember.

 

Dagskrá

9:30 – Mæting í matsal á Skólavörðuholti
10:00 – Morgunmatur í boði Tækniskólans (Hamborgari, franskar og gos)
10:45 – Ratleikur hefst
12:00 – Ratleik lýkur og verðlaunaafhending

 

Hefð að myndast

Sterk hefð hefur myndast fyrir útskriftarrat­leiknum þar sem nem­endur (oft klæddir í grímu­bún­inga) flakka um miðbæinn og leysa þrautir og taka myndir af fram­vindu leiksins. Liðið sem nær að safna flestum stigum vinnur svo til verðlauna.

Und­an­farin ár hafa nem­endur í hársnyrtiiðn verið sig­ur­sæl­astir þó K2 og nem­endur í Raf­tækni­skól­anum hafi oft strítt þeim.