Menu

Fréttir

21. febrúar 2025

Ert þú með sumarstarf?

Starfa­stræti Tækni­skólans

Starfa­stræti Tækni­skólans hefur þann til­gang að tengja saman nem­endur og fyr­ir­tæki þegar kemur að atvinnu­leit og starfs­námi.

Á síðunni má finna starfsaug­lýs­ingar frá fyr­ir­tækjum sem eru að leita að ein­stak­lingum í sum­arstörf eða önnur störf tengd fag­greinum skólans. Nemendur sem eru að ljúka fyrsta ári í rafiðnum, byggingagreinum og málmiðnum eru sérstaklega hvattir til að huga að sumarstörfum sem tengjast náminu.

Á Starfastrætinu má einnig finna gagn­legar upp­lýs­ingar fyrir nem­endur sem eru að taka sín fyrstu skref í atvinnu­leit. Hvernig á að setja upp fer­il­skrá, skrifa kynn­ing­ar­bréf og hvernig er best að und­irbúa atvinnuviðtal.

Við hvetjum nemendur til þess að fylgjast með síðunni og nýta sér þær upplýsingar sem eru til staðar.