Menu

Fréttir

16. mars 2026

Evrópusamvinna eykur tækifæri

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+.

Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ héldu ársfund í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg þann 5. mars. Fundurinn bar yfirskriftina Færni til framtíðar.

Markmið ársfundarins er að efla umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og varpa ljósi á mikilvægi færniþróunar til framtíðar. Á fundinum var fjallað um helstu tækifæri sem felast í Evrópusamvinnu og ljósi varpað á árangur sem hefur náðst í gegnum Erasmus+.

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+, segir mikilvægt að eiga samtal, heyra af árangursríkum leiðum til að efla færni með evrópskum styrkjum og að hugsa um eigin sögur, færniþróun eða eigið starf í þágu færni.

„Þegar við tölum um færni, þá erum við ekki að tala bara um það að verða betri í einhverju tilteknu fagi, heldur líka færni til að finna tilgang í lífi og starfi, byggja upp sjálfstraust, kynnast öðru fólki, takast á við breytingar og taka virkan þátt í samfélaginu, hvar sem fólk er statt á lífsleiðinni,“ útskýrir hún.

Einnig þakkaði Rúna Tækniskólanum fyrir gestrisnina.

„Við erum svo glöð að hafa getað hist hér í þessari merku byggingu, sem er nokkurs konar tákn um íslenska færniþróun. Tækniskólinn er líka einn af okkar öflugu þátttakendum í Erasmus+ og það fer því vel á því að halda ársfundinn okkar hér.“

Örlítið ógnvekjandi en breytir leiknum

Fannar Óli er komin með samning í París.

Fannar Óli, útskriftarnemi í hársnyrtiiðn, nýtti sér Erasmus+ -styrk til þess að fara í starfsnám til Parísar á síðustu önn. Þar fékk hann tækifæri til að kynnast hármenningu borgarinnar og öðlast nýja og stærri sýn á hársnyrtiiðn og möguleikana sem eru í boði.

„Ég heyrði af Erasmus+ í fyrsta skipti í kennslustund í skólanum. Það fyrsta sem ég gerði var að rétta upp hönd og spyrja, ertu að segja mér að ég fái pening fyrir að fara til útlanda?“

Í kjölfarið hóf hann leit að starfi erlendis og fann fljótlega stofu í París sem vakti áhuga hans. Hann fór út í atvinnuviðtal, fékk starfið og flutti út skömmu síðar.

Fannar dvaldi í París í tvo mánuði í starfsnámi, en það gekk svo vel að honum var boðinn tveggja ára samningur hjá stofunni eftir útskrift. Hann stefnir því á að flytja aftur til Parísar í sumar.

Að sögn Fannars getur það að fara í nám erlendis haft mikil áhrif á hvernig nemendur sjá fyrir sér fagið og framtíðarmöguleika.

„Maður kemur inn í námið hér og ætlar að verða hárgreiðslumaður, rakari eða vinna með konur eða bæði. En við það að fara út og upplifa öðruvísi hármenningu stækkar sjóndeildarhringinn. Maður þarf ekki endilega að vinna á stofu, það eru miklu fleiri möguleikar í boði, svo sem að keppa, kenna og vinna á tískuvikum. Þetta er svo rosalega stór bransi. Ég fékk mest út úr því að sjá hvað þetta er stór heimur.“

Fannar hyggist nýta sér Erasmus+ -styrk áfram þegar hann flytur út í sumar.

„Ég fæ Erasmus+ styrkinn í 10 mánuði að þessu sinni. Ég mæli eindregið með þessu fyrir alla nemendur. Þetta getur auðvitað verið svolítið ógnvekjandi fyrir unga krakka en þetta er alger „gamechanger!“

Framtíðarplön Fannars eru skýr. Hann stefnir á að starfa í París næstu tvö árin og í kjölfarið ferðast á milli helstu tískuborganna.

„Ég sé fyrir mér næstu 10 árin að búa erlendis. Mig langar að opna stofu hér heima á einhverjum tímapunkti og ferðast um heiminn og vinna, til dæmis í Tókýó, Róm, London, París og Köben.“

Fannar segir París kjörinn stað til að hefja þennan nýja kafla.

„Ég byrja á stofunni í París sem er auðvitað Mekka tískunnar, og svo veit maður aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér.“

Mikilvægt að víkka sjóndeildarhringinn

Eva Kristín nýtir sér Erasmus+ styrk til að stunda nám í Skive í Danmörku

Eva Kristín, nemandi í húsgagnabólstrun við Tækniskólann, leiddi áhugaverða vinnustofu um starfsþróun og færni á vinnumarkaði á viðburðinum. Eva nýtir sér Erasmus+ styrk til að stunda verklegt nám í Skive í Danmörku, en slíkt verklegt nám er ekki í boði á Íslandi.

Eva fer þrisvar sinnum til Danmerkur á önninni og  dvelur þar sex vikur í senn. Á vinnustofunni sagði hún frá reynslu sinni af náminu og í kjölfarið sköpuðust áhugaverðar umræður.

„Vinnustofan gekk mjög vel. Ég sagði frá lífinu í skólanum, heimavistinni og lærdómnum sem felst í því að fara erlendis í nám. Við ræddum líka ýmsa færni sem við viljum tileinka okkur á vinnumarkaði.“

Eva segir Eramsus+ hafa gert sér kleift að fara út og ljúka náminu, en styrkurinn stendur meðal annars undir ferðakostnaði, leigu og uppihaldi.

„Ég mæli hiklaust með því að allir prófi að fara erlendis í nám. Það víkkar sjóndeildarhringinn, maður fær nýja sýn á hlutina og átta sig á  að heimurinn er stærri en litla Ísland. Maður lærir heilmikið, bæði á náminu sjálfu og einfaldlega á lífið,“ segir hún.

Eva hvetur aðra til að kynna sér tækifærin sem Erasmus+ býður uppá, hvort sem um er að ræða stutt námskeið eða lengra nám erlendis.

Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+.
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+.
« af 6 »