Menu

Fréttir

06. maí 2024

Evrópusamvinna í 30 ár

Uppskeruhátíð og málþing

Á þessu ári eru 30 ár síðan EES samningurinn var undirritaður. Hann veitti Íslandi aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Í tilefni af þeim tímamótum bjóða Rannís, Utanríkisráðuneytið, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Sendinefnd ESB á Íslandi til uppskeruhátíðar og málþings miðvikudaginn 8. maí.

 

Evrópusamvinna í 30 ár

Uppskeruhátíð Evrópusamvinnu verður haldin í Kolaportinu þann 8. maí kl. 14:00–18:00 og þar verður árangri undanfarinna ára fagnað. Á sýningarsvæði hátíðarinnar munu sýnendur taka á móti gestum með fróðleik og skemmtun um þau verkefni sem styrkt hafa verið og áhrif þeirra á íslenskt samfélag. Tækniskólinn hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum í samvinnu við Erasmus+ og verða fulltrúar skólans með bás á hátíðinni.

 

EES í 30 ár

Þennan sama dag verður málþing um EES í 30 ár haldið á Grand hótel Reykjavík kl. 10:15–12:15. Á málþinginu verður sjónum beint að þátttöku Íslands í innri markaði Evrópu og velgengni íslenskra aðila í evrópskum samstarfsáætlunum.