Menu

Fréttir

15. maí 2026

Fann loks rétta námið eftir tíu ára leit

Útskriftarnemendur í grafískri miðlun, prentun og bókbandi ásamt ljósmyndun héldu opið hús og glæsilega útskriftarsýningu þriðjudaginn 12. maí í húsnæði deildanna við Vatnsholt. Yfirskrift sýningarinnar var Apollo 26 og einkenndist útlit hennar af geimþema þar sem gestir fengu að upplifa skapandi verkefni nemenda í skemmtilegu umhverfi.

Mikill fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna til þess að kynna sér verkefni nemenda sem mátti sjá víða um húsnæðið og ljóst var að þarna var hæfileikaríkt og skapandi fólk að ljúka námi.

 

Leitaði að rétta náminu í tíu ár

Steinunn við eitt af lokaverkefnum sínum.

Meðal þeirra sem sýndu verk sín var Steinunn Alexandra Magnýjardóttir, útskriftarnemandi í grafískri miðlun, prentun og bókbandi. Steinunn segir leið sína í námið hafa verið langa en þegar hún loksins fann réttu brautina hafi allt smollið.

„Ég var búin að vera að leita mér að námi í 10 ár sem myndi henta mér. Þetta var svona aha, þarna er þetta!“ segir hún.

Fjölbreytt verkefni og ólíkar hugmyndir

Á sýningunni kynntu nemendur í grafískri miðlun þrjú verkefni. Þau unnu eitt sameiginlegt lokaverkefni þar sem þau hönnuðu tímaritin Ask og Embluna frá grunni, það er að segja umbrot, innihald og hönnun. Þá fengu nemendur einnig það verkefni að stofna eigið félag þar sem verkefnið var frjálst en átti að innihalda grunnþætti menntunar.

Steinunn hannaði útlit fyrir nýtt flugfélag en verkefni samnemenda hennar voru meðal annars tengd sorphirðu og snjóbrettum. Verkefnin voru því afar fjölbreytt og endurspegluðu ólík áhugamál nemenda.

Stefnir á framtíð í bókbandi og kennslu

Steinunn lagði sérstaka áherslu á bókbandið og sýndi nokkur bókbandsverkefni á sýningunni.

„Ég er bókasjúk þannig ég lagði mikla áherslu á bókbandið,“ segir hún og bætir við að hún hafi alltaf stefnt að því að sérhæfa sig í bókbandi.

Aðspurð hvað það sé við bókbandið sem heilli hana mest svarar Steinunn:

„Bókbandið er svo frjáls grein. Allt getur verið bók sama hvernig það lítur út. Það er hægt að búa allt til.“

Steinunn segir að námið hafi ekki verið alltaf auðvelt og myndvinnslan hafi verið krefjandi í upphafi.

„Myndvinnslan fannst mér rosalega erfið því ég hafði aldrei unnið í henni áður. Fagið var mjög nýtt fyrir mér og ég var í djúpu lauginni. Jón Sandholt er æðislegur kennari og hann kom mér í gegnum þetta.“

Aðspurð hver framtíðaráform Steinunnar séu svarar hún ákveðin:

„Ég er með fimm ára plan. Ég er að fara á samning hjá Litlaprenti. Ég ætla að taka sveinspróf, meistarann í bókbandi og mögulega ná mér í kennsluréttindi og svo ætla ég að mæta hingað í Tækniskólann og sækja um vinnu sem bókbandskennari.“