fbpx
en
Menu
en

Fréttir

23. ágúst 2022

Fjarfundur fyrir forráðamenn nýnema

AnnarbyrjunKæru forráðamenn nýnema í Tækniskólanum (English below)

Ykkur er boðið á fjarfund fyrir forráðamenn nýnema í Tækniskólanum miðvikudaginn 24. ágúst kl. 18:00. Áætlað er að fundurinn taki u.þ.b. eina klukkustund.

Á fundinum munum ég og Guðrún aðstoðarskólameistari auk starfsmanna stoðþjónustu skólans segja frá starfseminni, þeirri þjónustu sem er í boði, námsvefnum Innu, félagslífi og fleiru. Við munum bjóða upp á sambærilegan fund á ensku klukkan 20:00 sama kvöld.

Þess má geta að á mánudaginn er öllum forráðamönnum sem eiga börn sem eru í HVAÐ-hópum einnig boðið í foreldrakaffi á sama tíma og HVAÐ tíminn fer fram – þ.e. klukkan 9:15. Þá munu þeir hitta umsjónarkennara síns barns, hitta aðra forráðamenn, fá kynningu og gott tækifæri gefst til að spyrja spurninga.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Hildur skólameistari og Guðrún aðstoðarskólameistari

Hér er upptaka af fund­inum sem haldinn var á íslensku.

 


 

Dear parents and guardians

We would like to invite you to a virtual meeting in English for parents and guardians of students at Tækniskólinn Technical College on Wednesday August 24th at 20:00. The meeting is expected to take about an hour. Hera is a link to the meeting.

In the meeting me and Guðrún vice principal and staff from our support services will give short presentations about the school, the services offered, the Inna information system, the school social life and more.

I would also like to point out that parents/guardians of students that are enrolled in a HVAÐ class are also invited to a parent/guardian cafe at school on Monday at 9:15.

We look forward to seeing you on Wednesday at 20:00.

Principal Hildur and assistant principal Guðrún

Here is a recording of the meeting in English.