Fjör á fjáröflunardegi
Fjáröflunardagur hársnyrtibrautar er árlegur viðburður þar sem nemendur á 5. önn bjóða gestum og gangandi upp á hársnyrtingu að eigin vali gegn vægu gjaldi.
Fimmtudaginn 22. janúar frá kl. 8:30-16:00 heldur hársnyrtibrautin fjáröflunardag og má búast við skemmtilegum degi þar sem nemendur, undir leiðsögn kennara, fá að spreyta sig í faginu sem þau munu senn leggja fyrir sig.
„Fólk hreinlega mætir og tekur númer og bíður svo eftir að vera kallað upp. Við reynum að láta hlutina ganga hratt fyrir sig og nýtum í leiðinni styrkleika hvers nemenda,“ segir Sigurlaug Ingvarsdóttir, fagstjóri og kennari hársnyrtibrautar.
Ágóði fjáröflunardagsins er nýttur í útskriftarsýningu nemenda sem haldin verður 18. mars næstkomandi í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Aðspurð við hverju megi búast á fjáröflunardaginn segir Sigurlaug að dagurinn sé vel skipulagður þrátt fyrir mikinn hraða.
„Það er mikil stemning allan daginn og mikið aksjón. Þetta er erilsamur stofudagur, það er brjálað að gera, mikið fjör og allir velkomnir. Á deginum læra nemendurnir að taka á móti ókunnugum og vinna hraðar en venjulega.“
Drengjum fjölgar í hársnyrtibraut
Undanfarin tvö til þrjú ár hefur orðið umtalsverð aukning drengja í hársnyrtibraut. Frá árinu 2020 hefur hlutfall drengja aukist um 38 % sem endurspeglar vissulega breytingu á samsetningu nemendahópsins.
Aðspurð hvað skýri þessa þróun nefnir Sigurlaug meðal annars breytt andrúmsloft og aukinn áhuga á rakara- og svokallaðri barbermenningu.
„Það er mjög gaman að fleiri strákar sæki í fagið. Young barber-menningin hefur orðið gífurlega vinsæl undanfarin ár og mikið af drengjum sækir í fagið úr þeirri átt.“
Hún segir greinina fjölbreyttari en hún var áður með breyttum áherslum. Í náminu er einblínt á sítt hár og stutt hár. Nemendur velja þær síddir sem þau kjósa helst að vinna með frekar en að einblína á kyn. Sigurlaug bendir jafnframt á að fjölbreyttari nemendahópur hafi jákvæð áhrif á námið og starfsandann yfirhöfuð.
„Drengir og stúlkur hafa gjarnan ólíka styrkleika og því getur verið mjög gagnlegt fyrir þau að vinna saman. Þannig læra þau að nýta styrkleika hvors annars sem er sérstaklega skemmtilegt og skapandi.“
Aukin áhersla á sérhæfingu
Að mati Sigurlaugar hefur mannlegi þátturinn stór áhrif á það hvaða einstaklingar sækja í hársnytibraut.
„Þú þarft að hafa gaman af fólki, geta talað við ólíka einstaklinga og fengið upp úr þeim óskir og hugmyndir. Námið hentar því vel þeim sem hafa gaman af því að vera innan um fólk.“
Þegar horft er til framtíðar og hvert nemendur í dag séu að stefna segir Sigurlaug fagið hafa breyst svolítið á undanförnum árum vegna þess að nemendur eru orðnir óhræddari við að sérhæfa sig og vinna með eigin styrkleika.
„Í náminu læra þau allt mögulegt en þau eru mun ákveðnari mörg í að sérhæfa sig í ákveðinni sérgrein í faginu sjálfu. Áður fyrr tíðkaðist það frekar að eftir útskrift færi fólk á almennar hárgreiðslustofur og sinnti því sem til féll.“
Sigurlaug leggur jafnframt áherslu á að enginn sé bestur í öllu en það sé vissulega styrkleiki að bera kennsl á eigin áhugamál og styrkleika og nýta til fulls.
„Við kennum gott handverk og fagleg vinnubrögð. Nemendur byggja svo ofan á þann grunn með tísku og straumum hverju sinni. Ef grunnurinn og handverkið er gott eru þeim allir vegir færir og geta þau þá alltaf tileinkað sér tískustrauma og unnið þá vel.“
Sigurlaug segir tískuna vissulega eiga sinn stað í náminu en í grunninn byggi allt á góðu handverki.
