23. nóvember 2023
Flugvirkjun
Opið hús
Tækniskólinn og Icelandair bjóða á opið hús hjá flugvirkjadeild Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 28. nóvember á milli kl. 17:00 og 19:00.
Tækniskólinn hefur útskrifað nemendur í flugvirkjun sem starfa m.a. hjá Icelandair, Landhelgisgæslunni og Air Atlanta. Atvinnumöguleikar í stéttinni eru víða um land og líka erlendis, mikil endurmenntun er í stéttinni og alltaf eitthvað nýtt að tileinka sér. Innritun í námið stendur yfir til og með 15. desember á vefsíðu skólans.
Öll sem hafa áhuga á að kynna sér nám í flugvirkjun eru hvött til þess að mæta og fræðast um námið og störf flugvirkja.