fbpx
Menu

Fréttir

13. mars 2023

For­rit­un­ar­keppni fram­halds­skól­anna

Háskólinn í Reykjavík hefur staðið fyrir Forritunarkeppni framhaldsskólanna í fjöl­mörg ár. Ásókn í keppnina hefur aukist ár frá ári og alls tóku 60 lið þátt í keppn­inni í ár sem er met­fjöldi.

Keppn­inni er skipt í þrjár deildir eftir erfiðleika­stigi. Delta er fyrir byrj­endur, Beta er millistig og Alpha er fyrir þá sem skara fram úr.

Líkt og svo oft áður stóðu nem­endur á tölvu­braut Tækni­skólans sig með glæsi­brag í keppn­inni og höfnuðu í ein­hverju af þremur efstu sæt­unum í hverri deild.

 

Delta deild

1. sæti – Syberhobia
Kepp­endur voru Þórbergur Egill Yngvason, Artjom Pus­hkar og Kristinn Hrafn Daní­elsson.

2. sæti – Við notum ekki Chat GPT
Kepp­endur voru Andri Þór Ólafsson, Davíð Bjarki Jóhönnuson og Sindri Freysson.

 

Beta deild

1. sæti – ZyzzBrahs
Kepp­endur voru Dagur Sigurðsson, Ívar Máni Hrann­arsson og Þorgeir Atli Kárason.

3. sæti – non stultus
Kepp­endur voru Þórhallur Tryggvason, Guðmundur Freyr Gunn­laugsson og Jason Helgi Hall­grímsson.

 

Alpha deild

2. sæti – Netþjónar
Kepp­endur voru Sæbjörn Hilmir Garðarsson, Bjartur Sig­ur­jónsson og Lúkas Máni Gíslason.

 

Við óskum nem­endum Tækni­skólans til ham­ingju með glæsi­legan árangur.