Menu

Fréttir

22. janúar 2025

Frítt námskeið í forritun

Forritunarkeppni grunnskólanna

Tækni­skólinn býður nem­endum í 9. og 10. bekk á for­rit­un­ar­nám­skeið fyrir byrj­endur og um leið að taka þátt í For­rit­un­ar­keppni grunn­skól­anna laugardaginn 15. febrúar.

 

Dagskrá

09:40–10:00 Móttaka

10:00–12:30 Fyrri hluti námskeiðs

12:30–13:00 Hádegismatur

13:00–14:45 Seinni hluti námskeiðs

14:45–15:00 Hlé

15:00–17:00 Forritunarkeppni

 

Bæði námskeiðið og keppnin fara fram í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi.

Tölvubraut Tækniskólans stendur fyrir keppninni og er markmið hennar að kynna forritun fyrir grunnskólanemendum og skapa vettvang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verkefni.

Skráning er hafin og stendur til og með 12. febrúar.

Sjá má nánari upplýsingar um viðburðinn inn á kodun.is.