19. febrúar 2025
Síðastliðinn laugardag fór fram Forritunarkeppni grunnskólanna. Keppni sem nemendur á tölvubraut Tækniskólans hafa haft umsjón með í samstarfi við starfsfólk.
Takk fyrir hjálpina elsku nemendur, keppnin hefði ekki verið möguleg, án ykkar aðkomu. Sérstakar þakkir fá Bjartur og Einar Darri sem eru fyrrum nemendur á brautinni og núverandi starfsmenn hjá tölvudeild skólans.
Eins þökkum við öllum þeim frábæru þátttakendum sem heimsóttu Tækniskólann og tóku þátt í keppninni og forritunarnámskeiði.
Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni og voru úrslit sem hér segir:
1. sæti – Gunnsteinn Þór Ólason
2. sæti – Magnús Kári Kristbjarnarson Bergs
3. sæti – Magnús Andri Maronsson
Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og takk öll fyrir komuna!