Forvarnardagurinn 2024
Forvarnardagurinn
Miðvikudaginn 2. október verður Forvarnardagurinn haldinn í grunn- og framhaldsskólum landsins. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og er markmið hans að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki.
Embætti landlæknis stendur að deginum í samstarfi við embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samfés, Heimili og skóla og Samstarfi félagasamtaka í forvörnum.
Íþróttaleikar Tækniskólans

Við í Tækniskólanum ætlum að halda upp á daginn með því að klæðast íþróttatreyjum og halda íþróttaleika sem fara fram í matsal nemenda á Skólavörðuholti, á Háteigsvegi og í Hafnarfirði.
Skólavörðuholt
Kl. 12:10 – Borðtenniskúlukast í fötu
Kl. 12:25 – Plankakeppni
Kl. 12:30 – 90° upp við vegg
Háteigsvegur og Hafnarfjörður
Kl. 12:10 – Borðtennis runa
Kl. 12:25 – Plankakeppni
Kl. 12:30 – 90° upp við vegg
Við hvetjum nemendur til að mæta í sinni uppáhalds íþróttatreyju þennan dag og taka þátt íþróttaleikunum.
Verðlaun í boði fyrir sigurvegara í hverri keppni!