Framboð til stjórnar og nefnda NST

Opið er fyrir framboð til stjórnar- og nefndarsetu NST fyrir skólaárið 2022–2023. Lokað verður fyrir framboð 8. apríl kl. 14:00. Kosningar fara fram á Innu dagana 25.–28. apríl.
Embætti
NST óskar eftir framboðum til stjórnar og nefndarsetu fyrir næsta skólaár. Skv. lögum NST verða eftirfarandi fulltrúar kjörnir í apríl:
Formaður
Formaður er talsmaður stjórnar út á við og sker formaður úr um niðurstöður kosninga þar sem ekki næst meirihlutasamþykki stjórnar.
Varaformaður (formannsframbjóðandinn sem fær næst flest atkvæði)
Varaformaður er staðgengill formanns og ritara séu þeir ekki á staðnum og er einnig hagsmunafulltrúa nemenda.
Ritari
Ritari sér um að rita fundargerðir fyrir alla fundi NST.
Fulltrúi nemenda á Háteigsvegi
kjörinn af nemendum á Háteigsvegi
Fulltrúi nemenda í Hafnarfirði
kjörinn af nemendum í Hafnarfirði
Fulltrúi nemenda á Skólavörðuholti
kjörinn af nemendum á Skólavörðuholti
Nefndir
Einnig verður kosið í eftirfarandi nefndir:
Skemmtinefnd
ber ábyrgð á skipulagningu skemmtiviðburða s.s. böll o.fl.
Árshátíðarnefnd
ber ábyrgð á skipulagningu árshátíðarviku
Videonefnd (Pulsan)
ber ábyrgð á því að gera myndbönd fyrir hönd NST
Auglýsinganefnd
ber ábyrgð á auglýsingagerð fyrir viðburði NST
Málfundarnefnd (Gettu betur og Morfís)
ber ábyrgð á Gettu betur og Morfís
Leiklistarnefnd (Desdemóna)
ber ábyrgð á því að setja upp leiksýningu
Tækninefnd
ber ábyrgð á tækjabúnaði og uppsetningu tæknimála á viðburðum NST
LAN nefnd
ber ábyrgð á því að halda LAN einu sinni á önn
Peysunefnd
ber ábyrgð á innkaupum og sölu á NST peysum
Hirðljósmyndari
ljósmyndar viðburði NST fyrir samfélagsmiðla og nst.is