Framkvæmdastjóri Skólastrætis
ráðinn til starfa
Mun leiða byggingu nýs Tækniskóla

Stjórn Skólastrætis ehf. hefur ráðið Guðmund Örn Óskarsson í starf framkvæmdastjóra félagsins. Skólastræti er félag í eigu Tækniskólans, skóla atvinnulífsins.
Starfsemi Tækniskólans er nú dreifð á níu mismunandi byggingar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Með byggingu nýs Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði er ætlunin að sameina alla starfsemi skólans á einum stað, í framúrskarandi og nútímalegu húsnæði, sem ætlað er að efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi enn frekar. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið árið 2029.
Guðmundur Örn er með meistaragráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Álaborgarháskóla og á að baki fjölbreyttan starfsferil sem stjórnandi í atvinnulífinu. Hann hefur sinnt ráðgjafastörfum síðastliðið ár en leiddi rekstrarsvið Controlant í gegnum gríðarlegan vöxt á tímum heimsfaraldurs. Þá gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs hjá Alvogen/Alvotech samstæðunni í 7 ár og þar áður 10 ár hjá Össuri/Emblu.

Guðmundur Örn er fullur tilhlökkunar að taka þátt í þessu þýðingarmikla verkefni:
Atvinnulífið þarfnast iðn- og tæknimenntaðs starfsfólks sem aldrei fyrr til að mæta vaxandi eftirspurn og stuðla að nýsköpun og framþróun. Með því að sameina starfsemina á einn stað tryggjum við betri nýtingu auðlinda, aukna samvinnu og bætta aðstöðu nemenda og starfsfólks. Nýr Tækniskóli í Hafnarfirði mun gegna lykilhlutverki í þessari umbreytingu og skapa tækifæri fyrir komandi kynslóðir til að öðlast nauðsynlega þekkingu og færni. Ég hlakka til að ganga til liðs við þann öfluga hóp sem hefur unnið að þessari framtíðarsýn og lagt grunninn að þessu mikilvæga verkefni.
Egill Jónsson, stjórnarformaður Skólastrætis, fagnar ráðningu Guðmundar Arnar:
Það er bæði ánægjulegt og mikilvægt að fá Guðmund Örn til að leiða með okkur byggingu nýs Tækniskóla og við bjóðum hann hjartanlega velkominn til starfa.