Fyrsta umferð Gettu betur 2025

Fyrsta umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, stendur yfir dagana 8. , 9. og 13. janúar.
Lið Tækniskólans skipa þau Óðinn Logi, Lóa Margrét og Magni Kristinsson. Varamaður er Otri Reyr Franklínsson. Þjálfarar eru Auður Aþena Einarsdóttir og Íris Erna Eysteinsdóttir. Fyrstu keppinautar Tækniskólans er lið Verzlunarskóla Íslands og má fylgjast með viðureigninni á vefsíðu RÚV.
Tækniskólinn mætir Verzlunarskólanum miðvikudaginn 8. janúar kl. 18:00 og þeir nemendur sem vilja styðja við liðið á keppnisstað, í útvarpshúsinu við Efstaleiti, geta skráð sig hér.
Dómarar og spurningahöfundar í ár eru þau Helga Margrét Höskuldsdóttir, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur B. Bragason. Spyrill er Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli.
Áfram Tækniskólinn!