Menu

Fréttir

27. mars 2024

Gjöf frá Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði

Í frétt á vefsíðu Samtaka iðnaðarins er sagt frá veglegu framlagi sem Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfiði gefur Tækniskólanum. Um er að ræða fyrsta eiginfjárframlagið sem ætlað er til byggingar á nýjum Tækniskóla, sem fyrirhugað er að reisa, við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Fjárframlagið nemur 38 milljónum króna. Félagið leitaði til Samtaka iðnaðarins um framkvæmdina og var samningur um framlagið ritaður í höfuðstöðvum SI fyrr á dögunum.

Í ljósi sögunnar, er gaman að rifja það upp, að Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var stofnsett þann 11. nóvember 1928 – líkt og Iðnskólinn í Hafnarfirði. Og eitt af meginmarkmiðum félagsins var að efla róður iðnmenntunar. En Iðnaðarmannafélagið rak Iðnskólann í Hafnarfirði samfleytt frá árinu 1928 til ársins 1956.

Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði hefur nú verið slitið og samþykkti stjórn félagsins að láta allar eignir renna til nýbyggingar Tækniskólans. Í frétt Samtaka iðnaðarins um málið, voru Erling Jóhannesson, Egill Jónsson og Hildur Ingvarsdóttir, jafnframt tekin máli.

Erling Jóhannesson, vélstjóri og fyrrum stjórnarmaður í Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði:

„Félagar í Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði lýsa ánægju sinni með að geta lagt lóð á vogarskálarnar við upphaf byggingar Tækniskólans í Hafnarfirði og þykir fjármunum þessum vel varið til eflingar iðn- og tæknináms. Við óskum Tækniskólanum alls velfarnaðar um ókomna tíð.“

Egill Jónsson, formaður Tækniskólans og byggingarnefndar skólans:

„Við erum afskaplega þakklát Iðnaðarmannafélaginu í Hafnarfirði sem leggur fram fyrsta eiginfjárframlagið til nýs Tækniskóla. Það er bæði táknrænt og merkilegt og lagt fram af heilindum og myndarbrag.”

Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans:

,,Við tökum af auðmýkt við þessu höfðinglega framlagi sem okkur þykir afar vænt um. Við munum verja því vel við byggingu nýs Tækniskóla og tryggja að merkri sögu og framlagi Iðnaðarmannafélagsins í Hafnarfirði verði gerð góð skil í nýrri byggingu.“

 

Myndir/BIG