24. janúar 2020
Gjöf frá Reykjafelli
Takk kærlega Reykjafell
Geir Arnar og Hildur Ýr frá Reykjafelli heimsóttu Raftækniskólann í Hafnarfjörðin og afhentu skólanum formlega þrjár Eaton Easy iðntölvur til nota við kennslu í stýritækni. Þetta er frábær stuðningur frá Reykjafelli og ekki veitir af, því þróun í þessum geira er mjög mikil og full þörf á að vera á tánum í kringum framfarir sem eru að verða í iðnaði og stýritækni.
Við hjá Raftækniskólanum þökkum Reykjafelli þennan stuðning og fyrir stuðning undanfarinna ára því þeir hafa staðið við bakið á okkur lengi.
Á mynd má sjá Hildi Ýr Þráinsdóttur starfsmann Reykjafells, Björgúlf Þorsteinson kennara og Geir Arnar Geirsson starfsmann Reykjafells.