04. desember 2023
Glæsilegur afrakstur nemenda
Útskriftarsýning í grafískri miðlun
Nemendur Upplýsingatækniskólans í grafískri miðlun verða með útskriftarsýningu föstudaginn 8. desember. Sýningin er á 3. hæð á Háteigsvegi og stendur frá kl. 15:00 til 17:00.
Sýning á verkefnum nemenda Upplýsingatækniskólans á sér langa sögu en hún er lokapunkturinn á lærdómsferli þeirra og gefur góða innsýn í hið yfirgripsmikla nám sem fram fer í skólanum.
Endilega kíkið við, skoðið glæsilegan afrakstur námsins og fagnið þessum stóra áfanga með nemendum.
Einnig er hægt að skoða verkefni útskriftarnemenda á vefsíðu þeirra.
Öll velkomin!