Menu

Fréttir

04. nóvember 2024

Grímuball í Ráðhúsi Reykjavíkur

Útskriftarsýning hársnyrtinema

Verið öll hjartanlega velkomin á útskriftarsýningu hársnyrtinema þriðjudaginn 5. nóvember. Sýningin er haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefst kl. 20:00.

Þemað í ár er grímuball og á sýningunni fá gestir að líta augum stórkostlegar hárgreiðslur og mismunandi múnderingar sem nemendur stílisera af eigin snilld.

Á sýn­ing­unni klippa, greiða og lita nemendur módel og sýna þá færni sem þau hefur lært í skól­anum.

Frítt er inn á sýninguna en tak­markaður fjöldi sæta.

Sjón er sögu ríkari!